12.04.1932
Neðri deild: 49. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í B-deild Alþingistíðinda. (916)
21. mál, geðveikrahæli
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Hv. þm. Ísaf. hefir alls ekki svarað aðalröksemd minni, að ýms sveitarfélög — eins og t. d. Rvík — séu fullfær um að greiða fyrir sína sjúklinga, þó að önnur séu það ef til vill ekki, og hv. þm. veit ofurvel, að það er orðin margra ára venja að láta ekki greiða nema kr. 1,50 á dag á GamlaKleppi fyrir sjúklinga sveitarfélaganna, og að síðan Nýi-Kleppur tók til starfa, hefir verið gætt hinnar ýtrustu sanngirni, þar sem þeim sveitarfélögum, sem erfitt hafa átt um greiðslu, hefir ekki verið gert að greiða hærra daggjald en þetta fyrir sjúklinga sína.
Þetta 150 aura gjald kemur ekki til mála, því að á því er engin föst hefð orðin. Heilbrigðisstj. væri t. d. lafhægt að senda meiri hluta sjúklinganna heim og segja: Við viljum ekki skaða ríkið um kr. 2,50 á dag á hverjum þeirra. — Sem sagt, aðalröksemd minni er ósvarað enn, og eins og ég tók fram áðan, legg ég til, að till. verði felld, því að í henni kemur fram hreppapólitík af lélegasta tægi.