12.04.1932
Neðri deild: 49. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (920)
21. mál, geðveikrahæli
Magnús Guðmundsson:
Það er ekki nema að nokkru leyti rétt hjá hæstv. dómsmrh., að sú fyrirspurn, sem ég beindi til hans, heyri ekki undir hans deild stjórnarlega, og auk þess verður hæstv. ráðh. að svara fyrir stj. alla í þessu máli, þar sem hann hefir lagt á móti þeim till., sem hér eru sérstaklega til meðferðar, og því beindi ég líka fyrirspurn minni til hans. —
Hæstv. ráðh. varaði við því að íþyngja ríkissjóði um of, og er ég honum sammála um það, en þess verður líka að gæta, að íþyngja sveitarfélögunum ekki um of, eins og gert væri með því að hafa daggjöldin kr. 3 50. Þar sem löggjöfin hinsvegar, hefir farið hann milliveg um aðra sjúklinga en geðveika, að hrepparnir greiða allt að 400 kr. í meðlag, en ríkissjóður það, sem umfram verður, sýnist ekki nema sanngjarnt, að þetta verði líka látið ná til geðveiklinganna. Skildist mér á hv. þm. Ísaf., að nauðsynlegt væri að breyta fátækralögunum, til þess að þetta gæti orðið, en ég held, að þess þurfi ekki, heldur sé nóg að fella ákvæði um það inn í frv., að 66. gr. fátækralaganna skuli einnig ná til geðveikrahælanna, enda verður heppilegra að fara þá leið til að koma málinu fram, því að svo langt er nú liðið á þingtímann, að óvíst er, að þetta næði fram að ganga á þessu þingi, ef nú væri farið að bera fram nýtt frv. í þessa átt. Vil ég beina því til þeirra, sem hlut eiga að brtt. á þskj. 326 og 349, hvort þeir mundu ekki geta fallizt á að snúa málinu inn á þessa braut og bera fram breytingartillögu í þá att. Þyrfti að vísu ef til vill að taka málið út af dagskrá að þessu sinni til að koma þessu í kring, en það ætti þó aldrei að geta tafið málið lengi.