10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1321 í B-deild Alþingistíðinda. (969)
22. mál, útvarp og birting veðurfregna
Pétur Ottesen:
Út af tilmælum þeim, sem fram hafa komið um að þetta mál verði nú tekið af dagskrá, vil ég benda á, að það sem forstöðumaður veðurathugunarstofunnar vill láta athuga nánar, snertir eitthvað samningana milli veðurstofunnar og útvarpsins um útsendingu skeytanna, en það snertir á engan hátt það atriði, sem risið hefir upp ágreiningur um milli deildanna. sá ágreiningur er aðeins um það? hvort ríkissjóður eigi að taka þátt í kostnaði við birtingu veðurfregna í nokkrum útgerðarstöðvum á landinu. En um það atriði, sem forstöðumaður veðurstofunnar vill fá nánari athugun á, má semja án þess að það sé nánara tiltekið í frv. Ég sé því ekki ástæðu til, að málið sé tekið af dagskrá þess vegna. Ég álit, að sjómennirnir eigi fyllstu sanngirniskröfu á því að halda þeim styrk, sem nú er veittur til þess að birta útvarpaðar veðurfregnir, og að Alþingi megi á engan hátt skerða eða draga úr því öryggi, sem í því felst, að þeir, sem eiga í daglegri baráttu við nátturuöflin, geti fengið sem nánastar og beztar fregnir um veðurhorfur. Ég vil þess vegna eindregið mæla með, að brtt. á þskj. 667, frá hv. sjútvn. Ed., verði samþ. Alþingi hefir áður viðurkennt nauðsyn þess, að sjómönnum sé sem bezt tryggður aðgangur að veðurfregnum. Verði þessi styrkur felldur niður, gengur Alþingi í berhögg við þessa viðurkenndu nauðsyn.