10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1324 í B-deild Alþingistíðinda. (975)

22. mál, útvarp og birting veðurfregna

Frsm. sjútvn. Ed. (Ingvar Pálmason):

Það hefir farið svo, að sú ósk, er fram kom um að málið yrði tekið af dagskrá, hefir valdið því, að nú er búið að mæla gegn brtt. sjútvn. Ed. Ég tel því rétt, að nokkur orð heyrist frá hálfu þeirrar n. til andsvara gegn þessum mótmælum.

Um þetta mál hefir nú verið nokkur ágreiningur milli deildanna, en hefir þó jafnazt að öllu nema þessu eina atriði, sem nú er um deilt. Ég get sagt, að ég hefi ekki fundið þau rök, er mæli því í gegn, að sanngjarnt sé, að ríkissjóður kosti að einhverju leyti birtingu útvarpaðra veðurfregna í þeim þorpum og kaupstöðum, sem sjór er stundaður, þar sem frv. gerir það að skyldu, að slíkt sé gert. Svo hefir alltaf verið raðgert í frv., og er því ekki sett í sjálfsvald sjóþorpanna. Og ég vil einmitt nota sem rök fyrir þessari skoðun minni þau hin sömu og hv. samþm. minn notaði til að sanna hið gagnstæða. En þau rök voru, að í sumum sveitum eða sjóþorpum, sem eru eitt hreppsfélag, hagar víða svo til, að nauðsyn er að festa upp veðurskeyti víðar en á einum stað. Þetta eykur vitanlega mjög kostnað við þetta hjá þeim sveitarfélögum, sem svo er ástatt um. En einmitt þess vegna er þeim mun meiri þörf á að rétta þeim hjalparhönd. — Þess ber að gæta, að birting veðurfregna á slíkum stöðum er skylda samkv. frv., og auk þess er svo mikil trygging í þessu fólgin, bæði fyrir líf og afkomu sjómanna víðsvegar um land, að telja má, að hér sé um þjóðhagslegt atriði að ræða. Ég held því, að ekki hafi að ástæðulausu verið gerður ágreiningur um þetta af hálfu okkar Ed.manna. Vil ég því vænta, að hv. Alþ., sem nú hefir sezt í eina málstofu, samþ. þetta. Tel ég það og líklegt, einkum þegar þess er gætt, að þetta ákvæði, sem ágreiningi veldur, komst af tilviljun inn í frv. í Nd., án þess þó, að ég hygg, að hafa meiri hl. hv. þdm. að baki sér.

Þegar litið er á þá upphæð, sem hér er um að ræða, þá finnst mér varla næg ástæða að bera fyrir sig sparnað á ríkisfé, þó að í sjálfu sér sé gott að fara sparlega með það. Því hefir verið haldið fram, og má færa rök að því, að sá hluti kostnaðar, sem á ríkissjóði kemur til með að hvíla, muni ekki fara fram úr 5000 kr., og þó sennilega verða minni. Veðurfregnir munu nú vera birtar á 60–70 stöðum. Með því að borga 50 kr. í hvern stað, sem er fastbundið hámark, þá má fjölga þessum stöðum upp í 100, eða um 30–40, til þess að upphæðin nemi 5000 kr. Að áliti forseta Fiskifélags Íslands mun sú upphæð vel duga, enda eigi vist, að borga þurfi alstaðar svo hámarki nemi.

Ég sé svo ekki þörf á að hafa þetta lengra, en vænti þess, að brtt. ásamt frv. verði samþ.