10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í B-deild Alþingistíðinda. (980)
22. mál, útvarp og birting veðurfregna
Guðbrandur Ísberg:
Hv. 1. þm. S.-M. hefir nú tekið fram ýmislegt af því, sem ég vildi benda a. En af því ég var búinn að kveðja mér hljóðs, mun ég gera grein fyrir atkv. mínu með örfáum orðum.
Sjútvn. Nd. lítur svo á, að ekki sé hægt að segja, að ríkissjóður leggi ekkert af mörkum til þess að koma veðurfregnunum til almennings, þó að ekki væri samþ. Það 50 kr. framlag, sem hér er um að ræða. í fyrsta lagi kostar ríkissjóður veðurstofuna, sem veðurskeytin semur, og í öðru lagi heldur ríkið uppi útvarpsstöðinni með ærnum kostnaði, og þóo að það séu ekki veðurfregnir einar, sem útvarðað er, þá eru þær þó talsvert stór liður í útvarpsstarfseminni.
Viðvíkjandi því, að ríkissjóði beri skylda til að styrkja birtingu veðurfregnanna í verstöðvum vegna þess, að í 2. gr. frv. sé ákveðið, að þær skuli birtar þar, þá vil ég leyfa mér að benda á, að hér getur ekki verið um neina skyldu að ræða, hvorki lagalega né siðferðislega. Hver á að dæma um, hvar sjósókn er „sérstaklega hættuleg“? Það gerir vitanlega stjórn viðkomandi sveitarfélags sjálf. Ef ágreiningur yrði um það á einhverjum stað, hvort sjósókn er þar hættulegri en almennt gerist, yrði það sennilega borið undir atkv. kosningabærra manna í sveitinni, hvort birta skuli þar veðurfregnir eða ekki.
Í fyrra skiptið, sem sjútvn. Nd. hafði frv. til meðferðar, felldi hún niður orðin: „og þar, sem sjósókn er sérstaklega hættuleg“ sem óþarfan hortitt. En hv. sjútvn. Ed. þótti nú sjálfsagt að taka þau upp aftur, og gerðum við henni það til geðs í seinna skiptið að láta. Þau standa, eins og nokkurskonar minnisvarða hennar í þessum lögum. Ríkisvaldið leggur enga skyldu á neitt sveitarfélag að láta birta veðurfregnirnar. Hvert veiðipláss verður að gera það upp við sig sjálft, hvort það vill kosta til þess eða ekki.
Þá lagði hv. þm. Borgf. mikla áherzlu á það, að ef Alþingi samþ. ekki brtt. hv. sjútvn. Ed., þá sýndi það með því, að það mæti ekki líf sjómannanna í verstöðvum svo mikils, að það vildi offra einum þrjú þús. kr. þeim til öryggis. En ég verð nú að segja, að ef sjómenn meta sjálfir ekki svo mikils líf sitt, að þeir vilji leggja fram þær 50 kr., sem brtt. ræðir um, þá er ekki ástæða til þess, að Alþingi fari óbeðið að leggja þær fram úr ríkissjóði. Því það hefir engin rödd heyrzt um það frá verstöðvum landsins, að þær óski eftir þessum 50 kr. styrk. Það er aðeins Fiskifélagið, sem hér vill halda uppi fjárveitingu, sem því var veitt á síðasta þingi í þessu skyni. En þess ber að gæta, að það var fremur nokkur ástæða til þess að veita fé til að taka á móti veðurfregnunum og birta þær, meðan þær voru sendar gegnum símann, heldur en nú, þegar farið er að útvarpa þeim, svo að hægt er að taka þær hvar sem er.
Ég vil undirstrika það, að ef brtt. er samþ., þá sýna hv. þm. með því, að þeir vilja halda við þeirri stefnu, að í hvert skipti sem eitthvað þarf að gera, skuli leitað til þess styrks frá ríkinu, hvað smávægilegt sem það er og hversu prívateðlis sem það er.