10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (983)
22. mál, útvarp og birting veðurfregna
Frsm. sjútvn. Ed. (Ingvar Pálmason):
ég skil það vel, að hæstv. fjmrh. telur sér skylt að vera á varðbergi, þegar um fjárútlát fyrir ríkissjóð er að ræða. En um þetta mál er þess að gæta, að öll birting veðurfregna, sem hingað til hefir átt sér stað, hefir verið kostuð af ríkinu. hér er því um alveg nýja stefnu að ræða, að létta af ríkissjóði kostnaði, sem áður hefir verið talið réttmætt og sjálfsagt, að hann bæri, og velta honum yfir á sveitarfélögin. Með þessu frv. er gerð ákvörðun í þá átt, að veðurfregnirnar komi sem flestum að notum, og er það vitanlega rétt mætt. Einnig verður þess að gæta, að þó að þessi umræddi styrkur sé greiddur úr ríkissjóði, þá eru samt lögð útgjöld á sveitarfélögin, sem þau hafa ekki áður borið. Í ár eru veðurfregnirnar birtar á 60 stöðum á landinu, að öllu leyti á kostnað ríkissjóðs. En ef frv. er samþ. með breyt. þeirri, sem sjútvn. Ed. flytur, þá eiga sveitarfélögin að kosta þessa birtingu a. m. k. að hálfu leyti. Mér finnst því, að hæstv. fjmrh. megi vel við una. hér er einmitt gengið á móts við hans stefnu, að létta gjöldum af ríkissjóði, þó að ekki sé öllum kostnaðinum dembt á sveitarfélögin.
Hinu ætla ég ekki að svara, sem fólst í orðum hæstv. fjmrh., að ég hafi aðeins fyrir augum Neskaupstað í Norðfirði og hv. þm. Borgf. Akranes. Ég býst við, að það hafi fremur verið sagt til gamans heldur en að hæstv. ráðh. hafi meint nokkuð með því. A. m. k. hljóta hv. þm. að sjá, að slík ummæli eru engin rök í málinu.