18.02.1933
Efri deild: 4. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í B-deild Alþingistíðinda. (1009)

23. mál, breyt. á vegalögum

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Það er ekki ný bóla, þó að fram komi frv. um breyt. á vegalögunum, þar sem heita má, að slík frv. hafi komið fram á hverju þingi, einkum þó út af viðhaldi sýsluvega. Var slíkt og eðlilegt, meðan sýslusjóðirnir höfðu ekki sérstakan gjaldstofn í þessu skyni, en úr því var bætt með lögum 1923, er þeim var heimilaður sérstakur gjaldstofn ásamt verulegu tillagi úr ríkissjóði.

1930 voru þær breyt. gerðar á vegalögunum frá 1924, að bætt var í þjóðvegatölu vegaköflum, er námu 350 km. En síðan hafa komið fram raddir á Alþingi um frekari breyt. í þessa átt, og var því máli vísað til stj. í fyrra.

Í þessu frv. er gert ráð fyrir, að vegaköflum að lengd 636 km. sé bætt inn í þjóðvegakerfið, en hinsvegar felldir niður úr því 54 km. Skv. þessu verða þjóðvegirnir alls 3100 km. Ég mun ekki fara nákvæmlega út í þær breyt., er í frv. felast, enda fylgir því ljós grg. frá vegamálastjóra. Breytingarnar á 1. fl. laganna frá 1924 eru um 20 samtals. Þar, sem því hefir verið við komið, hefir verið reynt að færa veg af hálendi niður í miðja byggð, sbr. Axarfjarðarheiði og Berufjarðarskarð. Kostnaður af þessum breyt. yrði eftir reikningi vegamálastjóra alls um 250 þús. kr. En þess er að gæta, að ríkissjóður borgar þessa upphæð ekki í einu, heldur smám saman. Brýr á þessum vegaköflum nema 280 þús. kr., en í brúarlögunum er gert ráð fyrir 200 þús. kr. í þessu skyni, og verður kostnaður af þessum lögum því 330 þús. kr. alls.

Ég vil geta þess, að tölur hafa færzt til í prentuninni á 6. bls. í grg. Vegur C. 1. yfir Reykjaheiði er ekki talinn bílfær, en er nú fær bifreiðum, og sama er að segja um C. 6. (Hofsósveg).

Þá er og ákveðið í frv., að ráðh. skuli úrskurða, hvar þjóðvegur endar. Kaupstaðir ná sumstaðar út fyrir hinar gömlu verzlunarlóðir, en ekki þykir ástæða til, að þjóðvegur nái lengra en þangað, sem talið verður eðlilegt, að götur taki við.

Í 2. kafla er kveðið nánar á um yfirumsjón vegamálastjóra með sýsluvegum, og er það ákvæði eðlilegt, þegar þess er gætt, hve framlag ríkissjóðs til sýsluvega er orðið hátt. Hefir og reynslan sýnt, að þetta ákvæði er nauðsynlegt.

Á 3. kafla eru smávægilegar breyt. Þar er kveðið fastar að um þá stefnu, að þjóðvegir skuli gerðir akfærir. Eins og áður er gert ráð fyrir, að Alþingi geti skyldað sýslufélög og sveitarfélög til að leggja fram nokkurn hluta kostnaðar við þjóðvegakafla, er nauðsyn þykir á að gera akfæra, en hinsvegar er það framlag ekki lögfest, heldur gert ráð fyrir, að það verði samningsatriði í hvert sinn milli héraðanna og Alþingis eða ríkisstj. Ennfremur er gert ráð fyrir, að stjórn vegamálanna ákveði, hvaða fjallvegi skuli gera akfæra.

Þá er sú breyt. í frv., að þyki vegamálastjórninni ástæða til að halda akfærum þjóðvegarkafla með snjómokstri að vetrarlagi, skuli telja þann kostnað með viðhaldi vegarins.

Ég býst við, að einstökum héruðum þyki hér e. t. v. of skammt gengið, en öðrum, sem líta á hag ríkissjóðs, kannske fulllangt. Ég mun þó eigi ræða hér um einstaka vegi, en hefi beðið vegamálastjóra að gefa samgmn. og einstökum þm. allar upplýsingar. Óska ég, að málinu verði, að lokinni umr., vísað til 2. umr. og samgmn.