18.04.1933
Efri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í B-deild Alþingistíðinda. (1019)
23. mál, breyt. á vegalögum
Páll Hermannsson:
Hv. 2. þm. S.-M. hnaut um eina setningu í nál. á þskj. 326, þar sem komizt er þannig að orði, að ef akfærum sumarvegi verði komið frá Reykjavík norður um land til Reyðarfjarðar, sé með því fullnægt langþráðri ósk allra Austfirðinga. Ég verð nú að viðurkenna það, að ég hafði sjálfur ekki veitt þessu orðalagi sérstaka eftirtekt, þegar ég skrifaði undir nál. Ég undrast það ekkert, þó að hv. 2. þm. S.-M. hnyti um þessa setningu; honum er sjálfsagt vel kunnugt um það eins og mér, að það mun heldur sjaldgæft, að Austfirðingar hafi allir eina sameiginlega ósk í vegamálunum. En þó hygg ég, að þetta sé sú umbót á vegasambandinu, sem einna flestir Austfirðingar verði sammála um. Það liggur í hlutarins eðli, að fyrsta sporið á að vera það, að komast í fullkomið samband við aðalvegakerfi landsins og geta ferðast þegar þörf krefur með bílum á akfærum vegum. Ekki sízt þegar strandferðum fækkar og samgöngur á sjó við Austurland fara versnandi.
Ég á enga brtt. við frv., en það stafar ekki af því, að ég hafi ekki fullkomið tilefni til þess, eða að kjósendur mínir hafi ekki óskað eftir því, heldur stafar það eingöngu af því, að ég álít, að frv. eigi að verða að lögum á þessu þingi, helzt óbreytt, og að í því felist gagngerð umbót frá því, sem nú er. Ég hygg, að ef allar óskir kjósenda í þessum efnum yrðu teknar til greina, eða samþ. meira eða minna af brtt. hv. þdm., þá sé mjög hæpið, að frv. gangi fram á þessu þingi. — Ég hefi lengi verið þeirrar skoðunar, að það sé eðlilegast, að stj. láti að undangenginni rannsókn undirbúa starfsplan fyrir ríkið í vegamálunum, og þær breyt., sem á vegalögunum eru gerðar, eigi ætíð að vera vel undirbúnar og gerðar að fullkomlega yfirlögðu ráði, en að brtt. frá einstökum þm. séu ekki samþ. án slíkrar athugunar. Þessari reglu hefir verið fylgt um undirbúning frv.
Ég er sammála hv. 2. þm. S.-M. um það, að sumar af brtt. hans eru mjög nauðsynlegar, og væri heppilegt, að sumir vegakaflarnir yrðu þegar teknir inn í þjóðvegalögin. En hinsvegar er ég á annari skoðun en hann um það, hversu líklegt sé að það flýti fyrir framkvæmdum á vegalagningum, án þess að sæmilegur undirbúningur sé tryggður fyrir því, og án þess að verulegar líkur séu til þess að fé verði til í ríkissjóði á næstu árum til þjóðvegalagninga svo nokkru nemi.
Í nál. höfum við gefið yfirlit um það, hvað þjóðvegirnir eru langir í einstökum héruðum samkv. gildandi lögum og hvað viðbótin nemur miklu samkv. stjfrv., og ennfremur hversu mikið er búið að leggja af þeim þjóðvegum, sem nú eru lögbundnir. Á bls. 8 í nál. má t. d. sjá það, að á Austurlandi verður lengd þjóðvega samkv. lögum og frv. því, sem fyrir liggur, 632,2 km., en af því eru 481 km., sem ekki teljast akfærir. Þegar litið er á vegamálin frá sjónarmiði Austf., þá vantar þar ekki fyrst og fremst lögákveðna þjóðvegi. En það, sem vantar, eru peningar til þess að gera þjóðvegina akfæra.
Ég lít svo á, að við þm. Austfirðingafjórðungs eigum nægilegt verkefni fyrir höndum að útvega fé til þess að gera þá þjóðvegi, sem nú eru á Austurlandi, að akvegum, þó að ekki sé bætt miklu við þá. Ég skal að vísu játa, að það stendur þannig á um vegarkaflann á milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar í Norðfirði, að hann á meiri rétt á sér en flestir hinir vegarkaflarnir, sem brtt. eru fluttar um. En þó hefði ég talið það viðfelldnara, að það mál væri betur undirbúið, áður en sá vegur væri tekinn í tölu þjóðvega. Það er óviðkunnanlegt að vita ekki, hvort vegurinn á að vera 20 eða 40 km. langur, eða m. ö. o. hvar hann á að liggja. Mér finnst eðlilegra, að það sé fyrst rannsakað, hvar vegurinn á að liggja og hvað hann muni kosta, áður en hann er gerður að þjóðvegi, og að þeim undirbúningi loknum verði reynt að útvega fé til þess að byrja á veginum. Því að þeir vegir, sem taldir eru þjóðvegir án þess að vera byggðir upp, eru lítils virði.
Á þinginu 1930 var bætt við þjóðvegi á Austurlandi 50 km. löngum vegarspotta, sem er allur í byggðu héraði og gæti komið mörgum að notum. En hvernig gengur að fá fé til þess að leggja hann? Það má vel vera, að þar megi um kenna ódugnaði okkar hlutaðeigandi þm., hvað lítið hefir áunnizt um fjárútvegun til þessa vegar. Inn í fjárlög síðasta árs var kúgað 10 þús. kr. framlag til hans, en í fyrra sumar var ekki unnið fyrir meiru en ca. 3600 kr. Hverju erum við svo nær, þó að þjóðvegirnir verði lengdir, ef framkvæmdirnar eru þessu líkar?
Í þessu fjárlfrv., sem nú er að berast hingað til okkar í deildina, er enginn eyrir ætlaður til þessa vegar. (IP: Við eigum nú eftir að bæta úr því). Ég veit, að hv. 2. þm. S.-M. er mér sammála um, að mikil nauðsyn sé á þessum vegi. Þó að ég flytji hér enga brtt. við frv., þá hafði ég ríka tilhneigingu til þess, enda hefir verið beint til mín óskum um það frá kjósendum mínum; en ég ætla ekki að gera það á meðan nokkur von er um að koma frv. fram lítið breyttu. Og ég geri ráð fyrir, að ef samþ. verða allar þær brtt., sem kjósendur kynnu að óska eftir, þá eigi frv. langt í land til þess að verða að 1.