10.05.1933
Neðri deild: 70. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (1045)
23. mál, breyt. á vegalögum
Lárus Helgason:
Ég á eina brtt. við þetta frv., á þskj. 560, um að taka einn nýjan veg í þjóðvegakerfið. Þessi vegur liggur frá eina verzlunarstaðnum, sem er á svæðinu milli Skeiðarársands og Mýrdalssands, og þangað sækir meiri hluti búenda í fjórum næstu hreppum sína verzlun. Lengd vegarins er um 25 km. alls. Þar af er 1/3 sandar, sem aldrei verður neitt gert við, en sem er sæmilegur bílvegur mestan hluta árs. 1/3 vegarins liggur um vallendi, sem verður sæmilega akfært með lítilli viðgerð, og loks er 1/3 vegarins um mýrlendan jarðveg, sem er illfær yfirferðar eins og stendur, þó þar sé farið. Þessi hluti vegarins kemur til að þurfa talsverðra viðgerða með, ef hann á að verða sæmilegur yfirferðar. Ég er sannfærður um, að það eru margir vegakaflar í frv., sem sízt eiga meiri rétt til þess að vera teknir í tölu þjóðvega en þessir.
Ég hefi þegar hent á, að þessi vegur liggur frá eina verzlunarstaðnum, sem er á þessu svæði, og þess vegna gefur að skilja, að hér er um mikla nauðsyn að ræða fyrir þá, sem þarna eiga hlut að máli. Þess er einnig að gæta, að um Vestur-Skaftafellssýslu liggur ekki nema ein þjóðvegalina yfir sýsluna, og út frá þeirri álmu liggur engin aukalína, sem er þjóðvegur, nema þessi, ef brtt. verður samþ. En í flestum sýslum landsins má benda á ýmsar aukaálmur, sem eru þjóðvegir. Ég býst ekki við, að það þýði neitt að fjölyrða um þennan veg. Ég hefi nú skýrt í aðaldráttum þær ástæður, sem að því lúta, að brtt. mín er réttmæt, og ég vænti þess, að hv. þd. verði það ljóst af því, sem ég hefi nú sagt, og vænti, að hún viðurkenni það með því að samþ. þennan veg í þjóðvegatölu.
Ég veit, að nú liggur fyrir svo mikið af till. um nýja þjóðvegi, bæði í frv. og brtt., sem vel getur verið, að þurfi rækilegrar athugunar við áður en þær eru allar teknar góðar og gildar, en ég hygg, að hvenær sem þessi vegur verður athugaður, þá komi það í ljós, að fyllsta sanngirni mælir með því, að hann verði tekinn í þjóðvegatölu.