10.05.1933
Neðri deild: 70. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í B-deild Alþingistíðinda. (1046)

23. mál, breyt. á vegalögum

Bergur Jónsson:

Ég hefi leyft mér að bera fram brtt. á þskj. 582 um að bæta í þjóðvegakerfið tveimur vegum. Hinn fyrri er um framlengingu á Vestfjarðavegi yfir á Barðaströnd. Eins og nú er, liggur vegurinn á milli Patreksfjarðar og Barðastrandar, yfir Kleifarheiði, en sú heiði er brött, illa löguð til akvegarlagningar og vafasamt, að hún verði gerð akfær fyrir bíla. Í brtt. minni er lagt til, að valin verði önnur leið og skemmri. Í stað þess að vegurinn liggur yfir heiðina, á að leggja hann frá Vestfjarðavegi á Mikladal, styttri leið um Miðvörður að Haga á Barðaströnd. Þessi vegur hefir verið athugaður og er álitið af kunnugum, að hann muni verða framtíðarvegurinn milli Patreksfjarðar og Barðastrandar. Hann mun vera nálægt 20 km. á lengd. Þess er rétt að geta, að vegur þessi er fjallvegur, sem ríkið þarf hvort sem er að kosta. Hvað það snertir, get ég því notað sömu rök honum til meðmæla og hv. samgmn. hefir notað um ýmsa þá vegarspotta, sem líkt stendur á um og hún vill að gerðir séu að þjóðvegum.

Hinn vegurinn er nýr vegur, Fossheiðarvegur, sem á að liggja frá Bíldudal yfir Fossheiði og á Vestfjarðaveg einhversstaðar á Barðaströnd, ekki nákvæmlega ákveðið hvar. Ef Vestfjarðavegur yrði tekinn í þjóðvegatölu alla leið til Barðastrandar, eins og ég legg til, og væri gerður akfær (bílfær), myndu menn, til þess að komast akfæra leið á milli Bíldudals og Barðastrandar, verða að krækja niður í Mikladal hjá Patreksfirði, en það er óhæfilega langur krókur. Þessi nýi vegur er áætlaður að vera 25 km. að lengd. Hér er því um að ræða vegi, sem nema 45 til 50 km. í mesta lagi. Ef maður athugar skýrslu frá vegamálastjóra, sem fylgdi áliti hv. samgmn. Ed., þá sést þar, að Barðastrandarsýsla, sem er ein af lengstu sýslum landsins, er sú sýsla, sem langskemmsta þjóðvegi hefir. Þetta nær vitanlega ekki neinni átt, þar sem hér er sýsla, sem er mjög erfið yfirferðar, og má segja, að hér sé um algert ranglæti að ræða. Barðastrandarsýsla á að búa við þjóðvegakerfi, sem er minna heldur en ýmsar þær sýslur hafa, sem eru miklu minni en hún. Má þar sem dæmi nefna Dalasýslu, sem hefir 113 km. í þjóðvegum, en Barðastrandarsýsla ekki nema 54 km. Að vísu er í frv. bætt meira við Barðastrandarsýslu af þjóðvegum heldur en sumar aðrar sýslur, en þó er hún eftir sem áður lægri en þær. Kjósarsýsla og Gullbringusýsla eru lægri að vísu. Kjósarsýsla hefir 71 km. og Gullbringusýsla 74 km. En réttast er í þessu tilfelli að telja þær sem eina sýslu, þar sem þær eru eitt lögsagnarumdæmi, og þá hafa þær talsvert miklu meira en Barðastrandarsýsla.

Næstar eru Húnavatnssýslur, en þó hefir hvor um sig miklu lengri þjóðvegi en Barðastrandarsýsla, og það er engin sanngirni í því, að hún sé lægri en þær, því hún er miklu lengri en hvor þeirra um sig.

Eins og menn sjá, hefir talsvert verið bætt við frv. í Ed. frá því það kom frá stj., og það er talsvert eftirtektarvert, að við það hefir verið bætt aðeins vegum í þeim héruðum, sem fulltrúa eiga í Ed. Það má heita, að sagan endurtaki sig um till. samgmn. þessarar d. Þar er 4 vegum við bætt, líklega til þess að jafna misfellur þær, sem n. hefir þótt verða á frv. í Ed. Hv. samgmn. hefir hér valið þá leið að bæta við, í stað þess að fella niður það, sem bætzt hefir við frv. í Ed. En úr því n. gekk út á þessa braut, virðist það hefði verið eðlilegt, að hún hefði leitað eftir þörfinni í fleiri héruðum en þessum fjórum, sem orðið hafa fyrir náð hennar. Ein breytingin er um nýjan veg í Rangárvallasýslu, en hún á tvo fulltrúa í n. Önnur breyt. er um veg í Norður-Ísafjarðarsýslu, sem sömuleiðis á fulltrúa í n. Loks á Vestur-Húnavatnssýsla fulltrúa í n., og þar er bætt við einum vegi, Miðfjarðarvegi. Að vísu er fjórði vegurinn í Suður-Þingeyjarsýslu, sem engan fulltrúa á í n. Ég skal ekki segja, fyrir hvað þessi vegur er tekinn, en vera má, að n. hafi þótt heppilegt að hafa samkomulag um sínar brtt. við fulltrúa þeirrar sýslu, sem eins og vitanlegt er er form. fjvn. Það getur verið, að hér sé aðeins um tilviljun að ræða, en ég verð að segja, að mér þykir það mjög einkennileg tilviljun, að ekki skuli finnast þörf á því að bæta við þjóðvegum í öðrum sýslum en þessum, úr því það ráð var tekið að bæta við fremur en fella niður breyt. Ed. A. m. k. er það ákaflega áberandi tilviljun, að eingöngu er bætt við vegum í kjördæmum hv. nefndarmanna. Að form. n. hefir ekki fengið neinum vegi við bætt fyrir sína sýslu, sýnist stafa af því, að Múlasýslur munu hafa farið einna bezt út úr því í Ed.