10.05.1933
Neðri deild: 70. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1006 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)

23. mál, breyt. á vegalögum

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Hér eru komnar fram brtt., sem fara fram á það, að 19 vegum verði hætt við í þjóðvegatölu. Samanlögð lengd þessara vega mun vera um 650 km. Ég þykist þess viss, að verði allar þessar brtt. samþ. nú við 2. umr., þá komi það mikið hik á þingið áður en mál þetta kemur til 3. umr., að frv. verði ekki afgr. á þessu þingi. Ég get skilið það, að hv. dm. hér hafi ekki verið fyllilega ánægðir með afgreiðslu hv. Ed. á þessu frv., einkum hvað snertir 3 vegi, sem Ed. bætti inn í það. En ég hefði álitið betra, að hv. samgmn. hefði tekið til athugunar, hvort ekki bæri að fella þessa vegi niður, til þess að kalla ekki fram jafnmargar nýjar brtt. og hér eru komnar fram. Ég tel, að það sé að biðja um nýjar brtt., að hrófla ekki við afgreiðslu Ed., heldur bæta bara við. Ég held, að hv. þdm. hafi ekki gert sér fyllilega ljóst, hvað aðstæður eru nú breyttar á þessu sviði frá því, sem áður var. Mismunurinn á sýslu- og þjóðvegum hefir minnkað mjög mikið. Samkv. 1. um bílaskatt má gera ráð fyrir, að hér eftir renni árlega 45000 kr. af þessum skatti beint til viðhalds á sýsluvegum. Þegar þetta bætist við þá upphæð, sem Alþ. veitir í fjárl. til lagningar sýsluvega, þá er augsýnilegt, að aðstaða sýslufélaganna til að viðhalda vegum sínum og endurbæta þá hefir batnað mjög á síðustu árum. Ég held, að það geti orðið vafasamur vinningur fyrir sýslufélögin að fá mikið af þeim vegum, sem verið hafa sýsluvegir, tekið upp í þjóðvegatölu. Vitanlegt er, að ekki kemur til greina að veita fé á næstu árum nema til lítils hluta af þessum vegum. Menn ættu að gera sér það ljóst, að það er ekki nóg að gera vegina að þjóðvegum á pappírnum. Eftir því, sem þjóðvegakerfið stækkar verður sífellt minni sú upphæð, sem hægt er að veita árlega til nýbyggingar vega, sökum þess hvað viðhaldið étur mikið upp af því fé, sem ríkissjóðurinn er fær um að leggja fram. Það gæti því blátt áfram tafið fyrir með lagningu nauðsynlegra vega, að þeir væru teknir í þjóðvegatölu. Það er ef til vill ekki ástæða til þess að rekja allar þær brtt., sem fram eru komnar, lið fyrir lið, en ég get þó ekki látið hjá líða að lýsa afstöðu minni til nokkurra þeirra.

Það er þá fyrst brtt. á þskj. 532, um Köldukinnarveg. Vegamálastjóri áætlar, að sá vegur muni kosta um 100 þús. kr., þ. e. a. s. kaflinn vestan Skjálfandafljóts. Kaflinn austan Skjálfandafljóts er bílfær á sumrum, en mun þó þurfa mikillar endurbótar við. Auk þess þarf að byggja dýra brú yfir Skjálfandafljót, ef leið þessi á öll að verða akfær. Ég er efins um það, að nokkuð sé fengið við það nú í bráðina að fá þennan veg upp í vegal., en þó tel ég rétt, að þessi vegur komi til greina næst þegar breyt. verður gerð á vegal. Vegurinn yfir Fljótsheiði er allvel fær nú þegar, og tel ég, að menn verði að notast við hann í bráð.

2. brtt. á þessu sama þskj. er um Mývatnssveitarveg. Af þessum vegi munu 10 km. vera í fjallvegatölu. Ég held, að það yrði hagkvæmara fyrir héraðið að hafa þennan kafla áfram í fjallvegatölu, og reynt yrði að veita fé til hans sem slíks eins fljótt og unnt er. Og þegar á þessu ári mun reynt að taka tillit til vegaþarfar þessa hluta Mývatnssveitar. Og þar sem fjallvegum fækkar nú heldur, ef frv. verður að lögum, þá má ætla, að meira komi framvegis í hvern stað af því fé, sem ætlað er til endurbóta og viðhalds á fjallvegunum. Tel ég því, að una megi í þessu efni þeirri skipun, sem nú er.

Viðvíkjandi brtt. á þskj. 547, um Skógarstrandarveg, er það að segja, að engin áætlun liggur fyrir um það, hvað sá vegur muni kosta. Þarna er að ræða um 70 km. veg, sem ekki er bílfær á þessu svæði, og á leiðinni þarf að brúa 6 stórar ár og margar smærri. Ég er því hræddur um, að löng verði biðin eftir verulegu framlagi til þeirrar vegagerðar, jafnvel þótt vegurinn kæmist í þjóðvegatölu. Ég álít, að það væri betri leið, ef viðkomandi sýslufélög byðu fram sinn hluta til brúargerðar á einhverju af þessum ám, og fengju framlag úr ríkissjóði á móti, sem gæti numið allt að 3/4 kostnaðar. Hitt er annað mál, að ég hefði talið rétt að samþ. brtt. í þá átt, að vegarálman frá Vesturlandsbraut yfir Hörðudalinn hefði verið samþ., með því að sú sveit hefir ekki svo teljandi sé aðstöðu til samgangna að sjó, en er hinsvegar oft á tíðum afskorin frá samgöngum á landi, þegar Miðá og Hörðudalsá eru ófærar, og er það sérstaklega til ógurlegs baga og stórmikils tjóns í sláturtíð á haustin.

Viðvíkjandi brtt. hv. n, á þskj. 555 skal ég taka það fram, að ég tel nokkra sanngirni mæla með því, að Þykkvabæjarvegur verði gerður að þjóðvegi. Þetta er 16 km. langur vegur, að nokkru leyti bílfær nú þegar, og þar eiga hlut að máli menn, sem ekki geta komið aðalframleiðsluvöru sinni frá sér, nema þeir fái þennan veg vel bílfæran. Að vísu eru það ekki nema 175 menn, sem þetta snertir aðallega, en þar eru svo góð skilyrði til jarðræktar, að ég efast ekki um, að fólki fjölgi þar á næstu árum.

Um brtt. n. á sama þskj. um Bolungavíkurveginn er það að segja, að þar vantar alveg undirbúningsrannsókn og kostnaðaráætlun. Og ég minnist þess að hafa heyrt fyrrv. landsverkfræðing láta sér þau orð um munn fara, að ekki væri víst, hvort hægt væri að gera veg á þessari leið.

Um Miðfjarðarveginn er það sama að segja, að þar vantar alla kostnaðaráætlun til þess að byggja á. — Reykjatangaveginn hefir verið gerð áætlun um, og er talið, að hann muni kosta 10000 kr. Ég held, að þessi vegur mundi koma fyrr, ef viðkomandi sýslur, Strandasýsla og Húnavatnssýsla, legðu fram ¼ kostnaðar hvor, móti helmings framlagi ríkissjóðs með sérstökum breytingum í fjárl. Þá væri komið að líkri niðurstöðu og þó að vegurinn væri tekinn nú í þjóðvegatölu. En ég tel ekki fært að fara að leggja þennan veg án tillags frá sýslunum.

Hvað snertir brtt. hv. þm. Barð., þá hygg ég, að 2 vegirnir, sem hann minntist á, séu í fjallvegatölu. Og mér er óhætt að fullyrða, að fullt tillit muni verði tekið til þeirrar sýslu um framlag til fjallvega.

Viðvíkjandi brtt. á þskj. 587 vil ég taka það fram, að allmikill hluti Reykholtsvegar mun vera í fjallvegatölu, og mun reynt að halda þeim hluta við af fjallvegafé. En hvað snertir þann kafla vegarins, sem er í sveit, væri hugsanlegt að viðhafa þá aðferð, sem einu sinni áður hefir verið höfð í líku tilfelli, sem sé að taka sanngjarnt tillit til þess slits, sem vegurinn verður fyrir af langferðafólki, og veita til hans dálítinn viðbótarstyrk.

Hvað viðvíkur Uxahryggjaveginum, þá held ég, að ekki komi til mála að eyða í hann stórfé, eftir að almennt hefir verið hallazt að leiðinni inn fyrir Hvalfjörð.

Þá kem ég að brtt. á þskj. 588, um Grenivíkurveg. Hv. þm. S.-Þ. mælti allkröftuglega fyrir henni. Ætlazt er til, að vegur þessi liggi frá Grenivík um Höfðahverfi yfir brú á Fnjóská hjá Laufási um Svalbarðsströnd á Norðurlandsveg hjá Veigastöðum. Þessi vegur liggur að vísu um allþéttbyggða strönd. En ég get þó ekki kannazt við, að sú sveit með Höfðahverfi og Grenivíkurþorpi eigi jafnmikinn rétt á þjóðvegi sem sveitirnar vestan Eyjafjarðar út að Dalvík. Ég þykist mega fullyrða, að þorpið Grenivík sé ekki nærri eins fjölmennt og Dalvíkurhverfið. Höfðahverfi er heldur ekki eins fjölmennt og Svarfaðardalur, sem svo mjög þarfnast vegasambands við Akureyri, og um Flateyjardalinn upp af Höfðahverfi veit ég ekki betur en að sú byggð sé því sem næst eða með öllu komin í eyði vegna burtstreymis fólksins úr þeirri harðindasveit.

Viðvíkjandi brtt. á þskj. 593 get ég sagt, að í þessu frv. hefir verið tekið mjög mikið tillit til þeirra, sem hlut eiga að máli, og ég held, að mín kæra sveit, Skagafjörðurinn, megi vel við una, þótt þessi vegur verði látinn bíða um stund.

Viðvíkjandi Gnúpverjaveginum verð ég að segja það, að þó að ég sé gamall Árnesingur, þá held ég ekki, að Árnessýsla sé afskipt í þessu frv. og tel ég mega vel við una. Viðvíkjandi álmu af Norðurlandsfjallvegi til Vopnafjarðar þá er hér um 75 km. vegalengd að ræða, og ég held líka, að Vopnfirðingar megi við una að hafa þann vegarkafla í fjallvegatölu fyrst um sinn.

Ég hefi á þessu tímabili, sem frv. hefir legið fyrir þinginu, fengið tilmæli frá tveim sýslunefndaroddvitum á þá leið, að þeirra sýslu sé sízt betur borgið þó að þeirra vegur væri strax tekinn í þjóðvegatölu. Því að þegar svo væri komið, að flestallir sýsluvegirnir væru á pappírnum orðnir að þjóðvegum, þá mundu sýslunefndir hætta að skipta sér af vegunum eða viðhaldi þeirra, og endirinn yrði sá, að vegagerðir allar mundu nær stöðvast í sýslunni. Það er ekki nóg, að vegir séu komnir á pappírinn sem þjóðvegir. Það þarf mikil og stöðug fjárframlög til þess að sú lagasetning komi að notum. Og ég sé ekki, að svo ári nú fyrir ríkissjóði, að hann geti næstu árin tekið á sig að auka vegakerfið verulega fram úr því, sem frv. gerir ráð fyrir.