04.04.1933
Neðri deild: 44. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (1072)

16. mál, varnir gegn því að næmir sjúkdómar berist til Íslands

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Það er ekki annað sýnna en að hinn nýi landlæknir okkar hafi vegið og léttvægt fundið allt það heilbrigðismálafyrirkomulag, sem viðgekkst, er hann tók við embættinu, því að síðan hefir heilbrigðismálafrumvörpum rignt niður eins og skæðadrífu, og það heilum lagabálkum, þó að um smábreytingar einar hafi verið að ræða efnislega. Ég held, að hér kenni hégómagirni ekki alllítillar hjá landlækni, og dýrt myndi það verða, ef hver nýr yfirmaður gerði þvílíkt að metnaðarmáli.

Það er nú svo um þessa heilbrigðismálalöggjöf sem marga aðra, að erfitt er fyrir leikmenn að átta sig á henni. Nefndir geta að vísu borið breytingarnar saman við eldri lög, en hafa í raun og veru litla aðstöðu til að dæma um, hvort þær eru til bóta eða ekki. Ég hefi látið þessi mál afskiptalaus undanfarið, af því að ég hefi talið, að heilbrigðismálastjórnin hefði betri aðstöðu til að sjá heppilegustu leiðirnar heldur en ég og aðrir einstakir þm. En nú hefi ég hnotið um þetta frv., og það vekur grunsemdir hjá mér um, að eitthvað fleira hafi verið skrítið í Harmóníu um lagasetningar af þessu tæi undanfarið.

Það, sem mig undrar mest í þessu máli, er það, að landlæknir, nefnd og ráðherra skuli hafa getað orðið sammála um slíkt frv. sem þetta. Ég skal nú ekki fara út í neinar smábreytingar, en víkja þegar að aðalbreytingunni, sem frv. gerir á núgildandi löggjöf, sem er hvorki meira né minna en sú, að taka eftirlitið af læknunum sjálfum og leggja það í hendur tollvörðum og lögregluþjónum. Það má vel vera, að þetta sé í samræmi við yfirlýstar skoðanir landlæknis um getuleysi lækna. En ég tel þessa breytingu stórvarhugaverða og draga úr öllu öryggi. Mér er ekki kunnugt um, hversu þessu eftirliti er háttað í öðrum löndum, og varðar heldur ekki um það, því að ég tel, að með núv. löggjöf okkar sé eðlilega og tryggilega um búið. Læknir fer um borð í hvert skip, tekur á sig alla ábyrgð á því, að næmir sjúkdómar berist ekki í land. Þetta er einfalt, látlaust og tryggt, og á þennan hátt bera skipin sjálf uppi dálítið af kostnaðinum. En nú á eftir frv. að haga þessu svo, að tollvörður fari um borð, fái yfirlýsingu skipstjóra um, að ekki séu næm veikindi í skipinu, og þar með búið. Skipstjóri á að hafa kynnt sér, hvort næmir sjúkdómar hafi gengið í þeim löndum er hann siglir frá. Það er nú ekki ótrúlegt, eða hitt þó heldur, að skipstjórar á einhverjum fraktdöllum geti gefið skýrslu um það, hvaða sjúkdómar hafi gengið t. d. í Miðjarðarhafslöndunum, er þeir létu þaðan úr höfn. Hinsvegar myndi héraðslæknirinn í Rvík að jafnaði fylgjast með því, hvaða sjúkómar ganga í löndum í kring, og sjá hvort þeir væru á skipunum. Ég fæ ekki betur séð en að þessi breyt. verði til aukins öryggisleysis fyrir landsfólkið og til aukinna óþæginda fyrir skipin. Þótt ekki sé nema um smákvilla að ræða, er mjög líklegt, að ólæknisfróður en samvizkusamur sóttgæzlumaður geri úlfalda úr mýflugu og láti skipið bíða eftir því, að læknisskoðun fari fram. Mér þykir því ljóst, að skipin kjósi heldur að greiða hið litla gjald fyrir læknisskoðun, eins og nú, en eiga slíkar tafir yfirvofandi. Mér er ekki kunnugt um, að neinar kvartanir hafi borizt yfir þessu gjaldi, og sé því ekki ástæðu til að vera að létta því af skipunum óumbeðið. Að vísu ætlast frv. til, að þetta gjald hálft eigi að renna í sóttvarnarsjóð framvegis. En þegar þess er gætt, að sá sjóður yrði ekki nema helmingur þess, sem þyrfti að bæta læknum fyrir tekjumissi, ef nokkur sanngirni er við höfð, virðist sá sjóðstofn vera hæpinn búhnykkur fyrir ríkið.

Það, sem vakti athygli mína á þessu frv., var það, að hafnarnefnd hefir haft á prjónunum ráðagerðir um að fá háseta, sem ekki eru haldnir af svonefndum næmum sjúkdómum, undir lækniseftirlit, og eru nú á leiðinni áskoranir til okkar þm. Rvíkur frá bæjar- og heilbrigðisstjórn um að koma málinu áleiðis á þinginu. Hér í frv. er gengið í þveröfuga átt, og því þóttist ég ekki geta annað en varað við þeim breyt., sem í því felast, áður en það fer út úr deildinni.