02.05.1933
Efri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2872 í B-deild Alþingistíðinda. (108)

Afgreiðsla þingmála

Jón Baldvinsson:

Hæstv. forseti! Ég stend hér upp til þess að fara nokkrum orðum utan dagskrár um störf þingsins. Þingið hefir nú starfað í 11 víkur, en harla lítill árangur er af því, eftir því, sem frekast verður séð. Stjskrfrv. var útbýtt 1. marz og kom í nefnd 8. marz, en síðan hefir ekkert um það heyrzt. Við Alþýðuflokksþm. fluttum frv. um alþýðutryggingar, sem kom fram 3. marz og fór í nefnd 11. marz, en síðan ekki söguna meir. Þá var og flutt frv. um kreppuráðstafanir 29. marz; það fór í n. 3. apríl. Ekkert hefir heldur heyrzt um frv. til framfærslulaga, sem einhversstaðar liggur í nefnd. Fleiri mál eru það, sem líkt er komið um, svo sem frv. um eignarnámsheimild á landi fyrir Hafnarfjarðarkaupstað. Ég ætla ekki að minna á smærri málin, en því vil ég aðeins skjóta til flokka þeirra, sem að stj. standa, að svona slæleg afgreiðsla á þjóðþrifamálum leiðir til hinnar mestu hættu fyrir lýðræðisfyrirkomulagið. Það er aðeins eitt stórmál, sem afgr. er til fulls, norsku samningarnir, en hversu affarasælir þeir verða fyrir íslenzku þjóðina, læt ég ósagt; úr því mun reynslan skera. En þau mál, sem ráða úrslitum um velferð þjóðarinnar, eins og kreppufrv., kjördæmamálið og fleiri, eru látin sitja á hakanum. Um kreppufrv. vil ég segja, að það er svo stórvaxið, að það hefði þurft að koma miklu fyrr fram, svo að hæfilegur tími hefði fengizt til umhugsunar. Og það er ástæða til þess að ávíta stj. og þá þingflokka, sem hana styðja, fyrir þetta aðgerðaleysi, því að, eins og ég tók fram, þá er það til stórtjóns fyrir lýðræðið, að sú hugmynd komist inn og festist hjá þjóðinni, að alveg þýðingarlaust sé að vísa málum til Alþingis.