06.04.1933
Neðri deild: 46. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (1089)
16. mál, varnir gegn því að næmir sjúkdómar berist til Íslands
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Hæstv. dómsmrh. óskaði eftir því við 2. umr. þessa máls, að allshn. athugaði, hvort hún gæti ekki fallizt á, að bæjarlæknirinn í Reykjavík fengi nokkra uppbót á laun sín vegna þess tekjumissis, sem hann yrði fyrir ef frv. yrði samþ. Hæstv. ráðh. benti helzt á, að þessi uppbót yrði veitt úr þeim sjóði, sem stofna skal samkv. frv. N. hefir athugað þetta og lítur svo á, að þetta atriði heyri alls ekki undir verksvið n. og vill engin afskipti af því hafa, telur, að það verði að útkljást á öðrum vettvangi.