02.05.1933
Efri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2873 í B-deild Alþingistíðinda. (110)
Afgreiðsla þingmála
Jón Baldvinsson:
Út af orðum hæstv. forseta vil ég taka það fram, að mér þykir réttara, að Alþingi taki til úrskurðar þau mál, sem fyrir því liggja; þau verða ekki endilega að lögum fyrir það. En sjálfsagt er, að þingið lýsi sinni afstöðu til málanna, og svo kemur til álits alþýðu. Mér þætti gott að heyra frá hæstv. forsrh., hvað líður kjördæmamálinu. Þingið hefir nú staðið 11 vikur, svo að nú mun fara að líða að þinglokum, og þá mun fara svo, eftir venjunni, að 10—20 málum sé hrúgað á dagskrá og þau svo afgr. í skyndingu. En hjá slíkri flaustursafgreiðslu á málum þarf að komast.