20.05.1933
Neðri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (1112)
16. mál, varnir gegn því að næmir sjúkdómar berist til Íslands
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Mér skilst, að hér séu einkum tvö atriði, sem máli skipta. Hið fyrra er, hvort nægar varnir séu í því, að ólæknisfróðir menn framkvæmi skoðunina, og hið síðara, hvort læknar missi um of af tekjum sínum við breytinguna.
Stjórnin hefir farið eftir till. landlæknis í þessu máli, enda hafa læknar eigi mótmælt fyrirkomulagsbreytingunni. Um verulegan tekjumissi er ekki að ræða, nema hjá héraðslækninum í Rvík. En bæði ég og landlæknir hafa lýst yfir, að honum yrði bættur sá missir, enda myndi ég ekki vilja verða til að setja fram lög, er gerðu nokkrum rangt til. Ég mun því greiða atkv. á móti brtt.