17.05.1933
Neðri deild: 76. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)
14. mál, veiting ríkisborgararéttar
Sveinbjörn Högnason:
Ég gat ekki orðið hv. samnm. mínum samferða um alla mennina, en ég hefi ekki haft enn tíma til að bera fram brtt. við frv., en mun gera það við 3. umr.
Ég tel ekki rétt, að sú braut sé farin, að veita ríkisborgararétt hverjum, sem um sækir, án tillits til þess, hversu lengi hann hefir dvalið hérlendis, og án tillits til þess, hvort hann hefir afsalað sér ríkisborgararétti annarsstaðar, eða hvort hann hefir lært að tala málið og skilja það. Erlendis er ríkisborgararéttur ekki veittur fyrr en viðkomandi hefir dvalið svo lengi í landinu, að hann hafi samið sig að siðum þjóðarinnar og lært málið. Tunga vor verður vart lærð af ómenntuðum almúgamönnum svo að lýtalaust sé á skömmum tíma, enda er það svo um fjöldamarga af þeim útlendingum, sem hér hafa dvalið 3—5 ár, að þeir kunna ekkert í málinu, að undanteknum örfáum. Ég tel 8 ár skemmstan tíma fyrir útlending til þess að læra málið á, svo að hann geti notfært sér það í ræðu og riti, og til þess að semja sig að siðum og háttum þjóðarinnar. Þess vegna mun ég bera fram brtt. við 3. umr. um að veita ekki mörgum þessara manna ríkisborgararétt fyrr en þeir hafa dvalið hér á landi í 8 ár. Ég sé ekki ástæðu til að veita ríkisborgararétt svo mörgum á þessu ári, að lítt rannsökuðu máli.