17.05.1933
Neðri deild: 76. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1068 í B-deild Alþingistíðinda. (1147)

14. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Eins og kunnugt er, hafa verið búin til eyðublöð, sem þeir menn verða að útfylla, sem vilja öðlast ríkisborgararétt. Þar eiga að koma fram upplýsingar, er sýna allt það, sem krafizt er sem skilyrði fyrir því, að útlendir menn geti öðlazt íslenzkan ríkisborgararétt. Geri ég ráð fyrir því, að n. hafi gætt þess, að þau skilyrði hafi verið uppfyllt eða séu fyrir hendi. Eitt, sem ónákvæmt er í þeim l., er um þetta fjalla, er það, hve mörg ár útlendingar þurfi að dvelja hér í landi áður en þeir geti öðlazt þennan rétt. Þetta mun vera nokkuð mismunandi hjá hinum ýmsu þjóðum. En það er rétt hjá hv. frsm., að hér hefir 5 ára dvöl verið látin nægja. Tel ég það hæfilegt og naumast réttlátt að heimta lengri dvöl. Þeir menn, sem búnir eru að dvelja hér 5 ár, eru oftast giftir íslenzkum konum, rita og tala íslenzku og munu naumast hverfa héðan aftur. Hvers vegna á þá að vera að neita þeim um þennan rétt? Með ríkisborgararéttinum öðlast þeir kosningarrétt hér og framfærslurétt. Ég tel ekki rétt að kippa að sér hendinni um veitingu þessa réttar nú né sanngjarnt að heimta lengri tíma. Ég veit heldur ekki, hvað vakir fyrir hv. 2. þm. Rang. með því að vilja lengja dvalartímann, né heldur hve langan hann vill hafa hann.