02.05.1933
Efri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2875 í B-deild Alþingistíðinda. (116)
Afgreiðsla þingmála
Magnús Torfason:
Ég stend upp sakir þessarar sendingar, sem ég fékk frá hv. 2. landsk. Hann brá mér um, að ég hefði sýnt málinu litla virðingu. Á því ætla ég ekki að biðja afsökunar. En ég kann illa við, að hann sé að bregða mér um ráp, því að ég fór aðeins einu sinni út af fundinum, og það var til þess að tala í landssímann. En um aðstöðu mína til málsins vil ég geta þess, að ég gaf hvorki hljóð né merki frá mér á fundinum. — Hæstv. forseti var að kvarta um, að nefndarstörf gengju verr nú en áður. Ég veit ekki betur en að hvert einasta frv., sem nokkur von er um, að nái fram að ganga, hafi farið alveg nógu fljótt gegnum allshn.