20.05.1933
Efri deild: 77. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1090 í B-deild Alþingistíðinda. (1183)
6. mál, verðtollur
Jón Jónsson:
Ég ætla ekki í þessari ræðu að ræða við hv. 1. landsk. um stj.skrármálið, því að ég veit ekki til, að það sé hér til umr. En ég get ekki stillt mig um að láta í ljós, að ég kann ekki við þennan blæ, sem er á hans ræðum. Hann er ekki hér að tala um málið sjálft. Það hefir hann margsinnis samþ. áður. En allt þetta tal er hafið til þess að ógna fleiri eða færri þm. til þess að greiða atkv. um stjskr. án tillits til sannfæringar, og ef við gerum það ekki, þá skal þjóðfélagið uppleysast. Hann skorar á menn að neita að greiða skatta og annað slíkt. Mér finnst það líka furðu djarft af hv. 1. landsk. að vera í sinni ræðu að taka frá okkur okkar ráðh. og setja í flokk með þeim, eins og hann sé að berjast við okkur. Ég veit, að forsrh. hefir tekið hér þá drengilegu afstöðu að reyna að koma á sáttum, til þess að leysa málið, án þess að hann sé okkur andstæður. (JónÞ: Ég orðaði það þannig, að þeir væru honum ekki nægilega fylgjandi). Þessar ógnanir hv. 1. landsk. finnst mér hróplegar, og að það skuli geta komið fyrir í okkar frjálsa þingi, að ógna eigi þm. til þess að greiða svona eða svona atkv., án tillits til þeirra eigin sannfæringar. Það má ekki krefjast minna en að þeir greiði atkv. eins og þeim finnst rétt. Þeir verða að vinna á löglegan og sæmilegan hátt, en ekki með ógnunum. Slíkir hlutir hafa alveg öfug áhrif við það, sem til er ætlazt. Annars skil ég ekki í því, hvaða sérstök tregða er nú fyrir hv. 1. landsk. með að afgr. fjárl. Það var e. t. v. önnur aðstaða í fyrra um þetta leyti, en nú er ekki hægt að segja annað en að stj., sem hefir meiri hl. þings, hafi um leið meiri hl. þjóðarinnar að baki sér. Og þar sem Sjálfstfl. á nú mann í stj. hélt ég, að hikið ætti að verða minna við að afgr. sæmileg fjárl., og í stjskrfrv. er gengið svo langt, að ef full vissa væri fengin fyrir því, að það yrði samþ. í Nd., yrði öruggt, að meiri hl. kjósenda hefði líka meiri hl. þings. Þess vegna skil ég ekki þetta, sem kemur fram hjá hv. 1. landsk., og finnst það naumast sæmilegt.