20.05.1933
Efri deild: 77. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1093 í B-deild Alþingistíðinda. (1186)

6. mál, verðtollur

Jón Baldvinsson:

Ég hefi lýst afstöðu minni til framlengingar verðtollsins eins og flokksmenn mínir í Nd., að þetta frv. gengur á móti þeirri stefnu, sem við viljum hafa um öflun tekna. Af þeirri ástæðu höfum við greitt atkv. á móti því, og munum einnig gera nú, þegar kemur til atkv. Það er þó ekki af því, að í þessu frv. og í þeim vörum, sem taldar eru upp í verðtollslögunum, séu ekki nokkrar vörur, sem leggja mætti á verðtoll án skaða fyrir landsmenn yfirleitt, en það er nú svo mikið af nauðsynjavörum í frv., að það eitt út af fyrir sig gerir það að verkum, að við erum andvígir frv. og þeirri stefnu, sem það byggist á. Frv. á þó yfirgnæfandi meiri hl. fylgjandi í d., þar sem bæði Framsfl. og Sjálfstfl. eru sammála um þessa stefnu. Sjálfstfl. hefir á stefnuskrá sinni að hækka tolla. Framsfl. hefir það nú að vísu ekki á stefnuskránni, en hann fylgir bara öðru en þar stendur, svo að þeir samþ. þetta báðir. En það, sem hefir stöðvað frv., er afgreiðsla stjskrármálsins, eins og í fyrra og að nokkru leyti sumarið 1931. Og ég tel það réttmætt, að minni hl., sem hefir að baki sér mikinn meiri hl. kjósenda í landinu, noti þetta tækifæri til þess að knýja fram breyt. á stjórnskipunarlögunum, sem miða að því að koma á jafnrétti meðal kjósenda í landinu. Það er skylda þeirra gagnvart þeim kjósendum, sem hafa sent þá á þing og falið þeim að berjast fyrir jafnrétti kjósenda í landinu. Af þessum ástæðum gæti ég vel hugsað mér, að þau tekjuöflunarfrv., sem ég í sjálfu sér gæti samþ. að stefnunni til, fái ekki mitt fylgi, ef svo stendur á sem nú, að með því væri hægt að hrinda fram kröfunum um jafnrétti, a. m. k. svo verulegum kröfum, að mér þætti viðunandi, og þykir mér eðlilegt, að nota verði það tækifæri að stöðva skattafrv. stj., því að í þessum vandræðamálum, sem liggja fyrir þinginu og þjóðinni, er ekki nema rétt og sjálfsagt og líklegt til þess að úrlausn vandamálanna verði betri með því að þjóðin öll sendi fulltrúa sína á þing eftir atkvæðamagni. Þá er minni hætta á, að til þess dragi, sem komið hefir fyrir annarsstaðar, að flokkar, sem ekki hirða um að koma málum sínum fram á þingi, taki það með handafli, sem þeir vilja, ef þeir aukast að fylgi til þess að geta gert þingið valdalaust og tekið stjórn landsins með ofbeldi. Þetta er hættan, sem við liggur, eins og hv. 1. landsk. benti á, að fyrir gæti komið. Það er rétt, að það er fleira en stjskrárfrv., sem fyrir liggur. Það eru einnig kreppumálin. Það liggja einnig fyrir frv. til atvinnubóta, en þau eru ekki hreyfð. Og það fer í raun og veru eftir afgreiðslu stjskrármálsins um afgreiðslu allra þessara mála, og eftir er að vita, hvort þingið stenzt þá eldraun, sem það virkilega er í. Afstaða mín til þessa máls er ekki breytt, og ég mun greiða atkv. gegn því og tel ekki nema rétt, að málinu sé frestað til þess að hleypa nú ekki öllu í blossa, þegar málin ættu að vera komin að því að ljúkast, nema það sé svo, að hæstv. forsrh. ætli að láta skeika að sköpuðu um frv., sem nú liggur fyrir Nd. og átti að vera til umr. þar, en er aðallega til umr. hér, því að það veit hæstv. forsrh., að er krafa þeirra flokka, sem óskuðu eftir og báru fram breytingar í fyrra og hitteðfyrra, að fá fullkomið jafnrétti með þingflokkunum á Alþ. eins og atkvæðin segja til. En það, sem felst í frv. stj., er ekki nema sem næst því, að í samræmi sé við atkvæðatölu þá, sem greidd er þingmannatölu flokksins, og það er í raun og veru of mikið sagt með þessu „sem næst“, því að það er ekki nálægt, að það verði í samræmi við þingmannafjölda flokkanna, ef miðað er við seinustu kosningar. Það er eðlilegt, að það sé sterk mótspyrna á móti því, að ennþá sé dregið úr því, sem hæstv. forsrh. gerði að till. sinni til Alþ. um 12 uppbótarsæti. Það er eðlilegt, að það sé sterk andúð á móti því, því að það var víst það allra minnsta, sem flokkarnir gátu hugsað sér. Þar að auki er þessi stjskr. að ýmsu leyti mjög gölluð í mínum augum, og eins og frv. er nú, er það ekki sérlega aðgengilegt fyrir Alþýðufl. — Ég mun því að þessu sinni greiða atkv. á móti frv. og vil gera það, sem ég get, til þess að hindra, að það nái fram að ganga.