18.05.1933
Efri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)

29. mál, iðju og iðnað

Jón Baldvinsson:

Ég álít, að meiri þörf sé á verulegum umbótum á lögum um iðnnám, en það eru ekki þau, sem liggja fyrir að sinni. Hv. frsm. var á þeirri skoðun, að ef ákvæði 14. gr. stæðu áfram, mundu þau gera framkvæmd laganna að engu. En þar eru ýmsar aðrar skyldur og ákvæði um námstilhögunina, sem þyrfti eins að laga. Mér finnst nú, að gera megi samanburð á þessum tveimur atriðum. Í öðru tilfellinu, prófinu, er það dómur fárra tiltekinna manna, sem gildir. Í hinu tilfellinu er það dómur hins fjölmenna stéttarfélags, og dóm þess tel ég ekki minna virði.