23.05.1933
Efri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)
12. mál, skrifstofufé sýslumanna og bæjarfógeta
Jón Þorláksson:
Ég vil beina því til hv. n., hvort hún vilji ekki athuga ákvæði 2. gr. nánar en hún hefir gert. Þar er svo fyrir mælt, að skrifstofufé hækki og lækki eftir því sem gullgildi íslenzkrar krónu hækkar eða lækkar. Ef þetta ákvæði hefði verið lögleitt árið 1931, hefði þetta skrifstofufé hækkað um 50% síðan á því ári, af því að samsvarandi verðfall varð á íslenzkri krónu móti gulli. En engin tilsvarandi verðbreyting varð í landinu, því að verðfallið á gullinu náði um svo mikinn hluta heimsins. Ef krónan hækkaði aftur á þennan hátt, fylgdi t. d. sterling, sem ekki er talið ólíklegt, ætti þetta að hafa tilsvarandi lækkun í för með sér á skrifstofufénu. Ef svo engin veruleg verðbreyting fylgdi gengisbreytingunni, þá efast ég um, að þetta ákvæði geti staðizt. Ég vil skjóta því til hv. n., að sé á annað borð farið inn á þessa braut, er ekki hægt að gera það á öðrum grundvelli en að fylgja einhverri íslenzkri verðvísitölu.