02.05.1933
Neðri deild: 63. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2879 í B-deild Alþingistíðinda. (124)
Afgreiðsla þingmála
Magnús Jónsson:
Ég vil taka undir það hjá hv. 2. þm. Reykv., að hæstv. forseti ýti undir form. stjskrn. með að halda fund í n. sem bráðast. Það er hálfóviðkunnanlegt að kljúfa n., áður en nokkur fundur hefir verið haldinn í henni, en til þess hlýtur þetta þó að leiða, ef ekki verður bráðlega haldinn fundur.