23.05.1933
Efri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)
66. mál, lögreglumenn
Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):
Ég hefði óskað, að hæstv. dómsmrh. hefði getað verið við þessar umr., en hann er ókominn ennþá, en sennilega væntanlegur áður en langt um líður. Við 2. umr. málsins hér í d. voru samþ. nokkrar brtt. frá meiri hl. fjhn. Af ræðu hæstv. dómsmrh. virtist mega draga þá ályktun, að hann væri ekki andvígur þeim brtt. Hann talaði fremur vingjarnlega í þeirra garð, en gerði við þær nokkrar aths., og virtist mér þær þannig vaxnar, að rétt væri að taka þær til íhugunar til 3. umr. Nú á milli umr. hefi ég leyft mér að bera fram brtt. við frv. á þskj. 644. Þær brtt. eru miðaðar við aths., sem hæstv. dómsmrh. gerði við þær breyt., sem gerðar voru á frv. við 2. umr. Ég hygg, að þar sé tekið tillit til, að svo miklu leyti sem mér þótti fært, aths. frá hæstv. dómsmrh.
Fyrsta brtt. felur í sér þá breyt. eina, að undir 1. skuli einnig koma kauptún, sem hafa 1000 íbúa eða fleiri, og það er ein af þeim aths., sem hæstv. dómsmrh. gerði við 2. umr. Meiri hl. fjhn. hafði, áður en ég flutti þessa brtt., flutt brtt. á þskj. 607 og eru það orðabreyt. að mestu leyti. Við nánari athugun taldi ég réttara að taka þessar breyt. upp í till. mínar á þskj. 644 og verða því till. á þskj. 607 teknar aftur. Hin önnur meginbreyt., sem í þessari brtt. felst, er sú, að láta hæstv. dómsmrh. fá íhlutunarrétt um, hvenær auka beri lögregluna, ef sérstaklega stendur á. Þetta var önnur aths., sem hæstv. dómsmrh. gerði við 2. umr., og ég skal taka það fram, að það geta verið þau tilfelli, að nauðsynlegt sé, að ráðh. geti haft slíkan íhlutunarrétt.
Ég hefi þá minnzt á þær höfuðbreyt., sem felast í brtt. á þskj. 644, og vænti þess fyllilega, að dómsmrh. geti fallizt á þær, því að þær eru fram bornar til þess að fá samkomulag um lausn í þessu máli, og það í þeim anda, sem fólst í brtt. okkar meiri hl. manna, sem samþ. voru við 2. umr.
Hv. 1. landsk. hefir borið fram brtt. á þskj. 612 og skal ég ekki fara um þær mörgum orðum að svo stöddu. Í mörgum tilfellum ber lítið á milli mín og hans, en þó er önnur brtt. hans gerólík. En sem sagt; ég ætla ekki að minnast á þær að svo stöddu, en vel getur verið, að ég víki að þeim síðar, þegar hv. þm. hefir talað fyrir þeim. Ég læt svo þetta nægja. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. líti yfirleitt svo á, að þetta mál verði að leysa og heldur muni hafa lægt öldurnar um það frá þingbyrjun og að vænta megi lausnar á samkomulagsgrundvelli á málinu.