23.05.1933
Efri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í B-deild Alþingistíðinda. (1270)
66. mál, lögreglumenn
Jón Baldvinsson:
Það er ekki oft, sem hæstv. dómsmrh. dettur ofan á að segja hlutina eins og þeir eru, en hann gerði það nú síðast, því að ég geri ekki ráð fyrir að geta fallizt á þessar till., sem hér liggja fyrir. Það er sýnilega farið að draga eigi lítið úr þeim miklu áhrifum, sem hið stórfenglega þing Framsóknar hafði hér í vetur, þegar bændurnir höfðu látið vanþóknun sína í ljós yfir þeirri stefnu, sem forsrh. Framsóknar og aðrir ráðh. þess flokks og forgöngumenn höfðu látið í ljós og fylgt fram í ríkislögreglumálinu. Flokksmennirnir, sem komu frá hinum dreifðu byggðum, tóku af skarið og vildu breyta um stefnu í því og fara gætilegar um eyðslu á landsins fé en gert hafði verið hingað til. Nú sýnist mér, að áhrif þessarar samkomu séu dálítið farin að dofna hjá framsóknarþingmönnunum, farin að minnka mesta hrifningin, sem varð dagana kringum þetta þing, og þeir eru farnir að ná sér aftur í sinn eiginlega og rétta farveg, að taka upp fullkomna samvinnu við íhaldið, og það er líklega frekar af feimni, að þriðji nm. fjhn. stendur ekki á neinni brtt., en að hann sé ekki samþykkur því, sem nú er fram borið. Við 2. umr. málsins þótti mér eftir atvikum hentara að samþ. nokkrar af till. Framsóknarflokksins, sem fólu í sér meinlausari ákvæði en voru í sjálfu stjfrv., því að í stjfrv. var takmarkalaus heimild handa ríkisstj. til þess að kveðja menn í varalögreglu eftir því, sem hún taldi óhjákvæmilegt á hverjum tíma. Í till. Framsóknar var nokkur takmörkun á þessu, svo sem sjá má á samanburði í frv. því, sem nú liggur fyrir og till. stj. í upphaflega frv., því að í raun og veru er það, sem samþ. hefir verið í 1. gr. frv., sem fyrir liggur, ekki annað en það, sem er í núverandi löggjöf. Ég veit ekki annað en að bæirnir hafi fulla og ótakmarkaða heimild til þess að ráða lögreglu í sína þjónustu, eins og fulltrúar þeirra í bæjarstj. vilja leggja á sig til þess að greiða lögreglunni. Ég held, að það sé enginn hemill á því, að bæjar- eða sveitarstjórnir ráði lögreglu, og það svo fjölmenna, sem þær vilja leggja fé til. Þetta er eingöngu orðið fjárhagsspursmál fyrir sveitarstjórnirnar, og það verða íbúarnir í bæjunum að gera upp við sig, hversu fjölmenna lögreglu þeir vilja hafa á hverjum stað. Því er ekki að leyna, að inn í þetta frv. komust till. frá hv. 1. landsk., sem gera frv. miklu verra en það hefði orðið eftir till. Framsóknarflokksins, þar sem hann m. a. kom því inn í frv., að skipshafnir varðskipanna skyldu teljast til ríkislögreglunnar. Þetta eitt út af fyrir sig gerir það að verkum, að ég get ekki fylgt þessu frv., þó að sum ákvæði þessu séu svo meinlaus, að þau breyti engu frá núverandi löggjöf. Nú vilja þeir fjhn.mennirnir, annarsvegar hv. 1. landsk. og hinsvegar hv. 2. þm. S.-M., bæta um þetta frv., auka það og efla á ýmsa lund. M. a. er hv. 2. þm. S.-M. kominn inn á þá skoðun, sem sennilega er komin fram eftir samkomulegi við hæstv. dómsmrh., að láta lögregluna einnig ná til kauptúnanna, en eftir skilningi hans við 2. umr. var það ekki heimilt og ekki tilætlunin skv. till. meiri hl. fjhn. Hv. 2. þm. S.-M. tekur nokkuð svipað upp í till. sínar eins og hv. 1. landsk. gerði við 2. umr., um að skylda skipshafnir varðskipanna til þess að ganga í lögregluna. Ætlunarverk þessara skipa er það að verja landhelgina. Þetta er ekki á neinn hátt herskapur. Íslendingar hafa engan sjóher. Þar eru valdir menn með tilliti til þess, að þeir séu sæmilegir sjómenn og ekki hefir tilætlunin verið önnur; því fráleitara er það, sem hv. 1. landsk. ber nú fram, að tollverðirnir skuli einnig taka þátt í þessari lögreglu, því að þeir eru sennilega ekki valdir með tilliti til þess, að þeir skuli vera varalið lögreglunnar. Ég þarf ekki að ræða mikið um till. þeirra hv. 1. landsk. og hv. 2. þm. S.-M. Ég get ekki fallizt á neina þeirra, en mér finnst sérstaklega ein till. frá hv. 1. landsk. mjög varhugaverð, till., sem hann leggur mikla áherzlu á og er við 6. gr. frv. Hún er um það, að skylda menn til þess að gegna kvaðningu í lögregluna. Það á að vera skylda hvers manns, hversu óljúft, sem honum er það, að starfa í þessari lögreglu. Þeir, sem kynnu að vilja setja út á þetta, — tálma því, að menn gegni kvaðningu — eins og hann kallar það, geta sætt hegningu frá 100 til 1000 kr. Þessari grein er áreiðanlega beitt gegn verklýðsfélögunum. Hún á að vera hemill á það, að verklýðsfélögin geti tekið andstöðu gegn kvaðningu í lögregluna eins og þau að sumu leyti gerðu í vetur. Það á að varða 100—1000 kr. sekt, sennilega á hvern einstakan mann, sem telur það ekki sæmilegt að vera í vinnuflokki með þeim mönnum, sem hefðu tekið sér starf í varalögreglunni. Út af ummælum hv. 1. landsk. verður að líta á það, hvernig þessi lögregla var stofnuð í haust. Það verður að líta á atburðina, sem gerðust, hvernig til þeirra var stofnað og hver voru aðalatriðin, sem komu æsingunum af stað. Í raun og veru var þetta kaupdeila við bæjarstj. Rvíkur, og verkamenn hér í bænum og víða um land eru svo næmir á þessa hluti, að þeir skildu undir eins, að aðalatriðið í því, sem um var deilt, var um kaupgjaldið. Verkamenn hér í bænum vissu, að það var ætlunin að lækka þeirra tímakaup um þriðjung, og þetta var þungamiðjan í þessu öllu saman. Út af þessu urðu ryskingarnar og út úr ryskingunum varð svo varalögreglan, sem Alþýðuflokkurinn hefir beitt sér gegn og er í samræmi við þá stefnu, sem tekin var 1924. Þá beitti Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, ef ég man rétt, sér gegn ríkislögreglunni, sem þá átti að koma á fót.
Þá fór hv. 1. landsk. nokkrum orðum um lögregluna almennt og um andstöðu einstakra flokka gegn henni. Honum fannst það eðlilegt, að kommúnistar væru á móti henni vegna þess, að þeir vildu ekki hafa neina lögreglu. Þeir vildu með ofbeldi rífa niður núverandi þjóðskipulag og væri þetta því skiljanlegt frá þeirra sjónarmiði. Aftur á móti skildi hv. l. landsk. það ekki, að Alþýðuflokkurinn gæti verið á móti þessu, því að hann byggði eins og aðrir flokkar með samskonar fyrirkomulagi á því, að breyta núverandi þjóðskipulagi með því að afla sér fylgis kjósendanna og gerði það innan vébanda lýðræðisins. Þetta er réttur skilningur á stefnu Alþýðuflokksins, en þar að auki byggir Alþýðuflokkurinn mikið á stéttabaráttunni. Það er misskilningur hjá hv. 1. landsk., að Alþýðuflokkurinn geti talizt til borgaralegu flokkanna, sem hafa stefnuskrár, sem eru í raun og veru allt milli himins og jarðar. Sumir íhaldsflokkar hafa jafnvel að sumu leyti socialismann á stefnuskrá sinni, framkvæma hann aldrei, en hafa hann aðeins sem ginningar á prógramminu. Það er því skiljanlegt, að Alþýðuflokkurinn, sem heldur uppi vörn fyrir stéttir í þjóðfélaginu, verkalýðsins fyrst og fremst, geti ekki fallizt á það, að komið sé upp liði, sem hinar stéttirnar geti notað sérstaklega til þess að beita gegn stéttasamtökum verkalýðsins. Út frá 9. nóv., sem var kaupdeiludagur, má ganga út frá því, að það myndi verða hlutverk þessarar lögreglu, stundum beint og stundum óbeint, að hafa áhrif á kaupdeilur, þegar þær stæðu yfir eða einhverjar óeirðir í sambandi við þær. Það er þess vegna langt frá því, að Alþýðuflokkurinn sé í nokkrum ógöngum í þessu máli. Hann hefir verið með því hér í bæjarstj. Rvíkur að fjölga lögreglunni á hæfilegan hátt, og ég geri ráð fyrir því, að við munum taka það þar til yfirvegunar og fylgja því, að lögreglan verði nægilega öflug til þess að geta haldið uppi sæmilegri reglu á götum bæjarins. Hitt er taugaveiklun hjá framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum, þegar þeir eru að hugsa um að hafa á að skipa svo miklu liði, að lögreglan verði alltaf sú sterkasta. Það er annað ráð til við þessu, en að hafa svona öfluga lögreglu, og það er ekkert annað en ef hæstv. stj. vildi gera það að sínu starfi, að stjórna landinu svo vel, að ekki þyrfti til neinnar óánægju að koma. Ef ríkisstj. t. d. vildi leggja sig í líma um það, að bæta úr atvinnuleysinu, þá mundi hún draga úr þeim möguleika, sem þar getur falizt í, að út brjótist óeirðir. En ég vil vona, að hæstv. ríkisstj. vilji fylgja því fram, að reyna að koma í veg fyrir, að svo mikið og svo langdregið verði atvinnuleysið, að mikill fjöldi verkalýðsins í kaupstöðum og kauptúnum landsins fari að líta svo á, að honum sé alveg sama, á hverju velti, af því að hann hafi engu að tapa, en allt að vinna. Og þegar það hugarfar er komið í fjölda manna, þá geta orðið stórir viðburðir. En þá álít ég betra að byggja fyrir meinin í upphafi, svo að þau valdi ekki alltaf stærri og stærri upplausn, heldur en að hugsa um það eitt að láta allt drasla með illri stjórn, en þá að koma upp svo miklu liði til þess að berja niður, þegar út í öngþveiti er komið. Þess vegna álít ég ekki þörf á að samþ. þetta frv., og þeim 400 þús. kr., sem á að verja í ríkislögregluna á ári hverju, væri sannarlega miklu betur varið, og hefði meiri áhrif til spekta, ef þeim væri varið til atvinnubótavinnu, heldur en að halda uppi lögreglu til að bæla niður óeirðir, sem upp kynnu að koma vegna ástandsins.
Ég ætla því að greiða atkv. á móti þessu frv., og ég ætla, að fáar af þessum till. séu til bóta, en þær eru þó sumar til að rugla frv., en það gerir ekki mikið til, þó að þurfi að hrófla eitthvað við frv. í Nd.