23.05.1933
Efri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1271)
66. mál, lögreglumenn
Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):
Hv. 1. landsk. gat þess í upphafi ræðu sinnar, að síðustu brtt. mínar væru orðréttar eftir brtt. hans á þskj. 612. Hann gat þess í þeim tón eins og ég mundi hafa samið þær eftir að hans till. hefðu komið fram, og þá hefði verið óþarft að taka þær upp. En ég get sagt hv. 1. landsk. það hreinskilnislega, að hér var ekki um neitt höfundahnupl að ræða, og stóð þannig á þessu, að ég hafði samið mínar brtt. áður en hans till. var útbýtt, þó að mínum brtt. væri ekki útbýtt fyrr en nokkru seinna. Það var af því að ég vildi tryggja mér það, að mínar brtt. væru ekki í andstöðu við minn flokk. Ég býst við, að þegar hv. 1. landsk. fær þessa skýringu, þá trúi hann orðum mínum, en hins vegar læt ég mér í léttu rúmi liggja, þó að hann álíti, að ég hafi tilhneigingu til að hnupla frá honum.
Að því er snertir mismuninn á brtt. okkar, þá verð ég að segja svipað og hæstv. dómsmrh., að mér finnst hann ekki mikill. En ég skil það aftur vel, að þar sem svo stendur á, að hv. 1. landsk. hefir með höndum stj. þess bæjarfélags, sem þetta mundi valda mestum útgjöldum, vilji hann í lengstu lög draga úr. En hann verður að gæta þess, eins og hæstv. dómsmrh. tók fram, að þetta er heimild, og ég tel sjálfsagt, að þessari heimild verði beitt þannig, að ekki verði um misbeitingu að ræða. En það heyrir undir dómsmálaráðh. að úrskurða, hvort þessi heimild er notuð að öllu leyti. Þess vegna tel ég, að þó að ekki beri mikið á milli um brtt. okkar, þá sé réttara að fylgja brtt. mínum, af því að þær eru meira í samræmi við frv. eins og það var afgr. frá 2. umr.
Þá taldi hv. þm. það galla á mínum brtt., að í þeim væri lagt til, að 2. málsgr. 3. gr. félli niður. Ég þarf ekki miklu að svara þessu vegna þess að hæstv. ráðh. hefir tekið fram, að hann telji, að það hafi ekki mikla þýðingu, því að hann lítur á þetta líkt og ég, að þessarar heimildar sé ekki beint þörf, og að dómsmrh. getur sett lögreglustjóranum fulltrúa, ef þörf krefur, án þess að bein fyrirmæli felist í þessum lögum. Hinsvegar skal ég segja það, að þetta atriði út af fyrir sig er mér ekki svo fast í hendi, og ef alvara er á bak við hjá hv. 1. landsk. þegar hann er að bjóða mér að semja, þá get ég sagt það, að það getur vel komið til mála, að ég láti b-lið 3. brtt. minnar falla niður, ef hann vill gera svipuð skil á sínum brtt.
Þá kem ég að því, sem okkur ber aðallega á milli. Það er í fyrsta lagi kostnaðurinn, hvernig honum á að skipta, og það er fyrir mér eitt aðalatriðið af tveim ástæðum. Fyrst og fremst af þeirri ástæðu, að ég tel það skyldu mína og allra þingmanna að gæta þess að hlaða ekki á ríkið útgjöldum, sem hægt er með góðu fyrirkomulagi að komast hjá, og sérstaklega þegar það er þannig vaxið, að ef kostnaðurinn af þeirri auknu lögreglu, sem þarf að grípa til undir sérstökum kringumstæðum, er allur lagður á ríkið, þá er það náttúrlega gefinn hlutur, að þar með er hverju bæjarfélagi gefin hvöt til að draga úr sinni lögreglu eins og verða má. Þetta er mjög hættuleg braut. Það má til að vera þessi hemill, svo að ekki verði innan tíðar afleiðingin af þessu lagaákvæði sú, að öll löggæzla í landinu, að frá dregnum embættismönnum, falli á ríkið. Ég tel því, að þetta sé eitt höfuðatriðið í frv., og ég skal geta þess, út af þeim orðum, sem hv. 2. landsk. lét falla í upphafi ræðu sinnar, þar sem hann taldi nú vera komið annað hljóð í strokkinn hjá okkur framsóknarþingmönnum heldur en var á framsóknarþinginu, að með þessum brtt. mínum er hvergi hvikað frá því, sem frams.þingið lagði til í þessu máli, og það atriðið, sem aðaláherzlan var lögð á, var einmitt þetta, að það yrði takmarkaður hluti af kostnaðinum við þessa aukalögreglu, sem á ríkissjóð félli.
Hitt atriðið, sem okkur ber á milli, hv. 1. landsk. og mér er það, að hann vili lögfesta það, að kvaðningin í þessa viðbótarlögreglu sé borgaraleg skylda. Hann taldi aðalkostinn við þetta ákvæði, að því er mér skildist, vera þann, að þeir, sem kvaddir eru, gætu afsakað sig með því, að þeir hefðu tekizt á hendur þetta starf, af því að það væri borgaraleg kvöð, sem ekki væri hægt að skorast undan án fullkominna ástæðna. En að mínu viti er þetta ókostur. Ég lít svoleiðis á þetta, að það sé a. m. k. fremur varhugavert fyrir okkur að lögfesta ákvæði, sem nálgast svo afarmikið herskyldu. Það er tvímælalaust, að þetta ákvæði, þó að það sé með nokkuð öðrum hætti heldur en ákvæði um herskyldu hjá nágrannaþjóðum okkar, er það í áttina, og mjög skylt. Og ég held, að það sé mjög tvísýnt, að þetta ákvæði sé mikill vinningur eins og sakir standa, og í öllu falli vil ég staðhæfa það, að það er nægur tími að koma þessu ákvæði inn í lögin, ef reynslan skyldi sýna að þess væri þörf.
Ég skal svo að síðustu geta þess, að þessar brtt. mínar eru, að svo miklu leyti sem ég get gengið úr skugga um, fram bornar í samráði við flokksmenn mína í deildinni, og ég hygg, að ég megi fullyrða það, að lengra vilji þeir ekki ganga til samkomulags, og það get ég sagt, að ef eitthvað það kæmizt inn í frv. nú, sem stríddi á móti þeirri stefnu, sem Framsóknarflokkurinn hefir tekið í þessu máli, er ekki gott að segja um, hverjar afleiðingar af því yrðu við endanlega afgreiðslu málsins. En mér finnst, að þar sem hæstv. dómsmrh. telur, að við brtt. mínar megi vel una, þá megi vænta þess, að hann stuðli til þess að þær verði samþ. og aðrar ekki, til þess að fá sæmilega lausn á málinu. Ég skil það ofurvel, að það er ekki nema mannlegt af hv. 1. landsk. að standa nokkuð fast á því, að ríkissjóður greiði allan kostnað af þessari viðbótarlögreglu, af því að hann er í þeirri stöðu, að hann hefir með höndum stjórn þess bæjarfélags, sem þetta hlýtur alltaf að verða langmestur útgjaldaliður fyrir. En á hitt ber ekki síður að líta, hvert stefnir, ef inn á þá braut er horfið að leggja þennan kostnað allan á ríkissjóð, því að það kemur sennilega til greina víðar en í Rvík, og ég get vel hugsað, að þessi upphæð, sem hv. 2. landsk. nefndi, 400 þús. kr. á ári, hrykki ekki til. En á hinn bóginn, ef þau ákvæði eru látin standa, sem þegar eru í frv., og ég legg til í brtt. mínum, að ríkissjóður greiði ekki nema ¼ hluta, þá er fengin talsverð trygging fyrir því, að fast lið sé í bæjunum á hverjum stað, og að það verði það öflugt, að örsjaldan þurfi að taka til viðbótarlögreglu.
Ég ætla svo að láta þetta nægja, ég hefi ekki ástæðu til að gera aths. við neitt af því, sem fram kom í ræðu hv. 2. landsk. Það var að því er mér virtist viðleitni til þess að andæfa málinu, og ég geri þess vegna ráð fyrir, að hann taki þessu máli hóflega, og að hann sjái það, að með brtt. mínum er ekki stigið neitt það spor, sem ætla má, að geti verið beint sérstaklega á þann flokk landsmanna, sem hann er fulltrúi fyrir. Hv. þm. minntist á varðskipin. Ég fór ekki fram á að gera skipshafnir varðskipanna að sjóher, en það er alveg rétt, að úr því að sett eru ákvæði um lögreglu ríkisins, þá er sjálfsagt, að skipshafnir varðskipanna heyri þar undir. Þess vegna er alveg ástæðulaust að firtast við, þó að þau séu sett í samband við þessi lög. Ég vil benda honum á, að 4. brtt. mín heldur fast í það, að telja skipverja varðskipanna til lögregluliðsins, en þar er gerð sú breyt. frá því, sem er í frv., að þar sem tollþjónarnir eru teknir undir það sama ákvæði, þá er í brtt. minni heimilað ráðh. að ákveða það sama með tollþjónana.
Þetta vona ég, að sé mikið til bóta, því að það horfir nokkuð öðruvísi við með tollverðina en skipshafnirnar á varðskipunum.
Ég vona, að málið leysist sæmilega í deildinni, og að þingið geti afgreitt málið, sem ég tel eitt af þeim málum, sem mest nauðsyn er að afgreiða á þessu þingi.