23.05.1933
Efri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (1273)

66. mál, lögreglumenn

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Það er tæplega þörf á að vera margorður hér eftir um þetta mál, þar sem ágreiningur er orðinn mjög svo lítill um aðalatriði þess. Ég vil aðeins undirstrika það, sem háttv. 2. landsk. sagði, að nú væri enginn hemill lagður á það, hve fjölmenn lögregla bæjanna mætti vera, og játar hv. þm. því, að hér sé ekki gengið inn á neina nýja braut. Hann segir, að því sé beint gegn borgurunum að leggja þessa skyldu almennt á þá. En það er ekki rétt. Þessi till. er fram komin til verndar þeim, sem starfa í lögregluliðinu, þar sem reynslan hefir sýnt, að þeim hefir verið stjakað frá vinnu. Þessi till. er fram komin til að firra þá þeirri hættu.

Hv. þm. sagði, að enga lögreglu þyrfti, ef nógu vel væri stjórnað. Ég skal nú ekki neita því, að svo geti verið. En þá er líka gerð meiri krafa til þeirrar stj., er nú situr hér, heldur en gerð hefir verið til nokkurrar annarar stj. hér eða annarsstaðar í heiminum. Ég sé á þessu, að hv. þm. hefir — svona í „smug“ —mikið traust á stjórninni hér á landi og meira en þekkist nokkursstaðar annarsstaðar. Hann hefir svona „lumskt“ traust á stjórninni! Þakka ég honum fyrir það, þó það kunni að hafa verið óvart að hann lét það í ljós.

Hv. 2. þm. S.-M. sagði, að þetta nálgaðist herskyldu. En það er mesti misskilningur. Það er leitt, að hann skuli standa í þessari meiningu, þar sem hann er að öðru leyti velviljaður þessu máli. Hv. þm. veit, að þetta er til þess að gera löggæzluna ódýrari. Það er því stór kostur að fá þetta í l. Þetta er ekki herskylda frekar en ýms önnur borgaraleg störf, er menn eru skyldugir að vinna. Svo er t. d. um hreppsnefndarstörf. Og hlutfallslega er ekki eins mikið, þótt kallaðir væru í þetta 100 manns hér í Rvík, heldur en að kosnir eru 5 menn í hreppsnefnd í litlum sveitarfélögum. Þetta veit hv þm., því ég hefi talað við hann um það. En hann gat þó ekki sætt sig við þessa brtt. og er því samkvæmur sjálfum sér í sinni skoðun á þessu atriði.

Út af ræðu hv. 2. þm. Árn. vil ég geta þess, að það er ekki meiningin með þessu ákvæði að þvinga neinn. Eins og ég hefi margtekið fram, er þetta gert til þess að firra þá óþægindum, er í varalögregluna ganga. Þetta er hið eina, er bæði fyrir mér og hv. flm. brtt. vakir. Ég hefi þegar reynt það, að vöntun þessa ákvæðis í löggjöfina bakar ríkissjóði útgjöld að óþörfu. Þau útgjöld skiptast að vísu, ef frv. verður samþ. En það er sama, hvar ónauðsynleg útgjöld koma niður. Það er betra að vera laus við þau. En það er rétt, sem hv. þm. sagði, að það er betra að gera ekki meira að þessu en nauðsynlegt er á hverjum tíma. En öldur þær, sem risið hafa upp í heiminum á hinum síðustu tímum, eru svo háar, að undan þeim er ekki hægt að komast. Og það er ekki hægt að ganga fram hjá þeim óeirðum, sem orðið hafa, einnig hér á landi. Nýjasta dæmi þess er frá Vestmannaeyjum, þar sem fangi var tekinn með ofbeldi út úr fangelsinu. Það sjá allir, að úr þessu verður að bæta.