30.05.1933
Neðri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1231 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)
66. mál, lögreglumenn
Bergur Jónsson [óyfirl.]:
Ég hefi borið fram þrjár brtt. við frv. þetta, ásamt nokkrum öðrum þm. 1. og 2. brtt. eru þess efnis, að bætt sé inn í 1. og 6. gr. frv. ákvæðum þess efnis, að aukning lögreglu samkv. l. þessum skuli fara fram eftir tillögum bæjar- og sveitarstjórna. Við teljum sjálfsagt, að þar sem um svo mikla aukningu er að ræða, sé leitað umsagnar bæjarstjórnar, bæði um þörfina á slíkri aukningu og fjárhagshlið málsins.
3. brtt. fer fram á það, að í stað 7. og 8. gr. frv. komi ný 7. gr. Í 7. gr. frv., eins og það er nú, er það gerð borgaraleg skylda fyrir alla verkfæra karlmenn að gegna kvaðning í varalögregluna, nema þeir geti fært ástæður, sem ráðh. metur gildar. Þetta ákvæði er fellt burt í brtt. okkar, en það ákvæði tekið upp til verndar þeim mönnum, sem verða í varalögreglunni, að þeir skuli njóta sömu verndar og aðstöðu og þeir menn, sem gegni borgaralegri skyldu. Ennfremur er tekið upp ákvæðið um það, að enginn megi á nokkurn hátt tálma því, að maður gegni varalögreglustörfum, og loks refsingarákvæði. Svipuð fyrirmæli og eru í 8. gr. frv., um bót fyrir meiðsli og tjón, eru einnig tekin upp í þessa 7. gr. okkar. Í frv. vantar ákvæði um það, hvernig skuli fara með mál, er kynnu að rísa út af þessum l., og mun ég koma fram með skrifl. brtt. þess efnis, að með þau skuli fara sem opinher lögreglumál.