17.05.1933
Neðri deild: 76. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2880 í B-deild Alþingistíðinda. (129)

Afgreiðsla þingmála

Hannes Jónsson:

Mér þykir það einkennileg aðferð, þegar forseti tekur mál út af dagskrá án þess að yfirlýsing liggi fyrir frá hlutaðeigandi n., að hún óski að fá málið til frekari athugunar.

Nú liggja fyrir nál. frá báðum hlutum n. Til hvers á þá að taka málið af dagskrá? „Til þess að athuga það betur“, segja þeir, sem vilja fá málið tekið af dagskrá. (Rödd af þingbekkjum: Frsm. meiri hl. er því samþykkur). Hann getur ekki um það sagt fyrir hönd n., því að hann hefir ekki borið það undir hana. (JAJ: Er ekki meiri hl. samþykkur? —ÓTh: Er þetta árás á hann?). Þetta er ekki árás á hann. Ef það er árás á nokkurn, þá er það árás á forseta fyrir það, að hann skuli ekki leyfa nefndarmönnum að tala í máli, áður en það er tekið af dagskrá. (LH: Menn eiga þá að biðja um orðið í tíma).

Ég óska eftir að fá ákveðið svar frá forseta um það, hvenær hann tekur málið á dagskrá aftur. Þetta er óbilgirni, sem þessum forseta er sæmandi að hafa í frammi, af því að hann er þekktur að því að sýna óbilgirni í málum.