30.05.1933
Neðri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1231 í B-deild Alþingistíðinda. (1290)
66. mál, lögreglumenn
Héðinn Valdimarsson [óyfirl.]:
Ég vil byrja þessa ræðu mína með nokkrum orðum til hæstv. forseta þessarar d. Ég veit ekki annað en að þm. sé heimill aðgangur að öllum vistarverum þingsins.
Og ég held, að svo hafi verið þangað til í dag. Ég ætlaði inn á Kringlu rétt áður en þingfundur hófst, en þar stóð lögreglumaður við dyrnar og ætlaði að varna mér inngöngu. Ég sagði honum óskorað, að ég stæði hér sem þm. í þinghelginni, og að hann ætti ekki með að leggja á mig hendur, og fór inn. Þar sátu þá 20 lögregluþjónar. Ég vona, að stj. eigi engan þátt í þessu atviki, og þykir líklegt, að það hafi aðeins verið ókurteisi mannsins að kenna.
Ég mun þá snúa mér að því máli, sem hér liggur fyrir. Við útvarpsumr. um daginn hafði ég svo stuttan ræðutíma, að mér vannst ekki tími til þess að svara öllu því, sem þá var komið fram með af andstæðingum mínum, og vil ég því svara ýmsu af því nú.
Ég vil taka nokkur atriði af því, sem hv. frsm. minntist á. Þ. á. m. lagði hann áherzlu á, að þó að ekki væri hægt að verja það, að bæjarstj. hefði ætlað að lækka kaupið í atvinnubótavinnunni, þá gæfi það engan rétt verkamönnum til þess að berja á lögreglunni. Nú er það svo, að prófunin hefir leitt í ljós, að barsmíðir urðu ekki af því, að verkamenn réðust á lögregluna, heldur hitt, að lögreglan greiddi fyrsta kylfuhöggið. Fyrir matarhléið var mönnum lofað, að þeir fengju óhindraðir að koma inn að því loknu. En þetta var svikið og lögreglan barði þá menn, sem vildu fara inn, svo að þeir gengu um alblóðugir. Og hið sama endurtók sig, þegar salurinn var ruddur fyrirvaralaust. Þá réðst lögreglan á áheyrendur með kylfum, bekkjum og stólum, svo að ekki var hægt fyrir þá, sem þar voru, að dreifa sér eða fara út. Sömuleiðis sést það glöggt af prófinu, að þegar lögreglan réðst út í Templarasund, þá er það hún, sem fyrst vegur að mannfjöldanum, sem þar er fyrir. Í öllum þessum tilfellum er ekki að ræða um árásir verkamanna á lögregluna, heldur um árásir frá hendi lögreglunnar. En lögin virðast meta það jafnt, hvort heldur um er að ræða vörn gegn árásum lögreglunnar eða beinar árásir gegn henni. En flestir munu álíta þetta tvennt ólíkt frá mannlegu sjónarmiði, hvað sem lög og dómstólar segja.
Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að lögregluþjónarnir hafi óskað eftir því að lenda í slag þennan dag, og hverjum það er að kenna skal ég ekki segja, en þeir hafa a. m. k. fengið skipun um að fara svona að ráði sínu. Ég vil í þessu sambandi benda á, hvernig fyrrv. dómsmrh. lét taka þetta mál upp. Hann hefir látið höfðu mál á móti aðeins litlum hluta þeirra manna, sem þarna voru viðstaddir, og það hefir ekki sannazt á neinn þeirra, að þeir hafi barið á lögreglunni. Til samanburðar á þessu má benda á, hvernig íhaldsdómsmálaráðherrann hefir tekið á þeim glæpamálum, þar sem ráðizt er á verkalýðsfélögin og trúnaðarmenn þeirra. Sá samanburður sýnir greinilega innræti dómsmrh., sem lét sér sæma að kalla mína skýrslu frá 9. nóv. litaða. En það stendur enn óhrakið, sem ég sagði, að lögreglan hefði ráðizt á mannfjöldann 9. nóv., því að sá maður, sem átti að hafa byrjað barsmíðin, var m. a. s. sýknaður fyrir réttinum.
Þá má benda á, hvaða ráð núverandi dómsmrh. notaði um daginn hér við 2. umr. þessa máls, til þess að koma því betur áleiðis, þegar urðu frammíköll af pöllunum. Þá lætur dómsmrh. svo sem því líkt hafi aldrei skeð í öll þau 20 ár, sem hann hefir átt sæti á þingi. Þarf ekki annað en benda á þingrofið, þegar kallað var fram í á allt annan hátt, hótað að henda þingmönnum út og þar fram eftir götum. Hann notaði þetta eingöngu til þess að blekkja útvarpshlustendur úti um land, sem ekki vita, hvernig á stendur, og naut hann þess, að hann var síðastur manna í útvarpinu og því ekki hægt að svara honum og leiðrétta þetta.
Viðvíkjandi varalögreglunni, sem ráðh. segir, að sé svo bráðnauðsynlegt að hafa og það fjölmenna, enda þótt þeir segi, að ekki eigi að nota hana á móti verkalýðsfélögunum, þá er til heimild fyrir ríkisstj. til að gefa út bráðabirgðalög til þess að stofna þetta setulið. Hvort stj. hefir ekki treyst sér að bera slík bráðabirgðalög fram, veit ég ekki, en sennilega á að nota þetta klíkusamband á milli tveggja stærstu flokkanna hér á þingi til þess að breiða yfir þetta gerræði. Sennilega voru ekki gefin út þessi bráðabirgðalög vegna þess, hversu mikill ábyrgðarhluti það var fyrir ráðh. að stela fé úr ríkissjóði á þennan hátt.
Það hefir verið upplýst, að varalögreglan hefir kostað 200 þús. kr. og mun kosta 400 þús. kr., ef henni verður haldið við þetta ár. Og þessi kostnaður hefir orðið fyrir mótstöðu jafnaðarmanna, segir ráðh. Þetta er ekkert annað en blekkingartilraun frá hans hendi, því að ekkert hefði verið hægara en að leggja varalögregluna niður, og þá hefðu þessir menn, sem hafa látið fleka sig til að ganga í hana, fengið aftur sættir við verkalýðsfélögin, og þá hefði engin peningaleg nauðsyn borið til að halda henni við lýði.
Þá sagði ráðh., að ég hefði sagt, að allir hvítliðar væru glæpamenn. Það hefi ég ekki sagt, en hitt veit ég fyrir víst, að ýmsir meðal þeirra eru gamlir bruggarar og eins hafa ýmsir verið sektaður fyrir áfengislagabrot. Og það er ekki svo að skilja, að þessir menn þurfi að vera úr alþýðusamtökunum, því að eins og ég tók fram áður, þá gengu í hvíta liðið aðeins 13 manns úr Alþýðusambandinu. Eftir orðum lögregluþjóna, þá er þetta einmitt vaskasta liðið, þó að ég sé ekki að verja á neinn hátt þeirra framferði. En það sýnir bara, hversu hvíta liðið er óvinsælt meðal almennings, að lögreglustjóra og Erlingi Pálssyni, sem þó gekk eins og grenjandi ljón um bæinn til að fá menn til að skrifa sig inn, tókst ekki að fá saman öðruvísi lið en þetta.
Hæstv. ráðh. gat þess, að ég hefði óskað eftir að fá uppgefin nöfn þessara manna til þess að geta ofsótt þá. Ég veit ekki til, að þeir hafi verið ofsóttir. Verkamenn vilja ekki vinna með þeim, þeir vildu heldur ekki vinna með hæstv. dómsmrh., þó hann nú færi í eyrarvinnu, ef hann væri ekki í verklýðsfélögunum. Hinsvegar hefir ekki verið snert við neinum hvítliða, en alþýða manna hefir lítið álit á þeim, sem þannig hafa gerzt liðhlaupar.
Hæstv. dómsmrh. sagðist ekki hafa viljað láta mig fá nöfn varalögreglumanna. En fyrir utan það, að hann neitaði mér um nöfnin, sem ég reyndar vissi flest áður, þá neitaði hann einnig, að ég fengi að sjá sundurliðaðan reikning um kostnaðinn við varalögregluna. Ég veit ekki, hvers vegna ráðh. vill ekki játa uppskátt um það, hversu mikið þeir fá fyrir að vera hér í þingsölunum. Og ekki hefir sézt, hversu miklu hefir verið varið til vopnakaupa, eða hverskonar vopn það eru, sem á að nota, hvort keppt hefir verið táragas eða annað þvílíkt. Þetta er þó mikilsvert að vita, bæði til þess að sjá, hversu hinni margumtöluðu sparsemi er framfylgt, og eins til þess að sjá, til hvers á að nota liðið. Ég veit ekki, hvers vegna hæstv. dómsmrh. vill ekki svara fyrirspurn, sem kemur fram á þinglegan hátt.
Hæstv. dómsmrh. lýsti því yfir í útvarpsræðu sinni, að enginn yrði tekinn nauðugur í þetta lið. Ég verð að taka þetta svo, sem það sé hans meining, að enginn verði kvaddur nauðugur í liðið, en þá er mér spurn, til hvers er þá þetta ákvæði í frv. um almenna skyldu til að gegna kvaðningu, og hvers vegna eru við lagðar sektir og refsingar, ef menn ekki gegna kvaðningu?
Þá vík ég máli mínu til forsrh. Hann talaði um mikla nauðsyn á að halda uppi friði og reglu í landinu, eins og vænta mátti af honum. En þá er mér spurn, hvort forsrh. tekur þetta á sama hátt og þm. G.-K. Hann lýsti því yfir, að ef verkfall væri við Kveldúlf og verkstjórarnir næðu í verkfallsbrjóta til þess að vinna áfram, en svo þyrptust Dagsbrúnarmenn á vinnustaðinn og hindruðu vinnuna, þá mætti ekki halla á ríkislögregluna til hjálpar. Nú vildi ég spyrja hæstv. forsrh., hvort hann legði sama skilning í þetta eins og þm. G.-K.
Hæstv. forsrh. sagði, að formaður Alþýðusambandsins hefði hagað sér öðruvísi í Ed. í þessu máli en við jafnaðarmennirnir hér. Hann hefði talið sér skylt að taka þátt í afgreiðslu málsins og haft áhrif á úrslitin. En það gerum við líka hér, enda höfum við borið fram brtt. við frv. til þess að hafa áhrif á afgreiðslu þess.
Þá talaði ráðh. um, að nú heyrðust ekki lengur háværar raddir móti ríkislögreglunni. Ég veit ekki, hvaðan hann hefir þetta. Hingað hafa borizt mótmæli frá fjöldamörgum almennum fundum úti um land og verkalýðsfélögum, og nákvæmlega sömu aðferðum beitt til andmæla úti um land eins og hér í Rvík. Ég þekki ekki einn einasta verkamann, sem breytt hefir um skoðun í þessu máli frá því það fyrst kom fram, og er ég þó kunnugri þeirri stétt heldur en ráðh. Þá talaði hann um, að alþýðumenn væru friðsamir og vildu engar óspektir, og það er rétt, að fáar stéttir manna eru eins friðsamar og þeir. En að halda uppi stóru herliði, það er ekki til þess að tryggja friðinn í landinu, heldur til þess að stofna til ófriðar. Erlendis vilja menn minnka herina, vegna þess að það er skoðun manna, að stórt herlið hljóti að leiða af sér liðsauka annarsstaðar. Og hér verður sama uppi á teningnum. Þær stéttir, sem hafa grun um, að nota eigi liðið gegn þeim, munu koma sér upp traustu liði til varnar. Verkalýðssamtökin eru ekki óhult nema gerðar verði varúðarráðstafanir, og munu efla varnarlið sín eftir föngum.
Í Þýzkalandi er 100 þús. manna her. Það svarar til 60—70 manna her hér á landi. En þetta lið í Þýzkalandi er svo vel búið, og svo vel æft, að franski hermálaráðh. telur vafasamt, hvort þetta lið sé ekki betra en allur franski herinn með þriggja ára herþjónustu. Og það er víst, að Nazistaflokkurinn þýzki þóttist ekki hafa nóg lið fyrr en hann hafði fengið þetta fámenna herlið í sínar hendur. Þeir tóku völdin á lýðræðisgrundvelli, en notuðu síðan herliðið til þess að kúga andstæðingana og brjóta mótspyrnuna á bak aftur. Hið sama getur komið fyrir hér á landi. Svona sterkt lögreglulið getur orðið hættulegasta árásin á lýðræðið í landinu. Með því liði verður hægara að stjórna heldur en ef þyrfti að skapa sér nýtt lið. Framsóknarmenn, sem segjast vera andvígir öllu einræðisbrölti, ættu að athuga sögu Þýzkalands, það getur farið fyrir þeim eins og miðflokkunum þýzku, að þeir molni upp og verði að engu í höndum einvaldsflokka.
Hv. þm. G.-K. vildi neita því, að kauplækkunin í atvinnubótavinnunni hefði verið ákveðin af hálfu Sjálfstæðisflokksins eða miðstjórn hans. Ég vil taka það fram, að það var yfirlýst af borgarstjóra og forseta bæjarráðs, að tillagan væri komin fram frá flokksstjórn Sjálfstæðisflokksins, og þetta er mjög eðlilegt, þar sem í þeim félagsskap eru fjöldamargir atvinnurekendur; frá þeim eru komin tilmælin um kauplækkun. En eftir þetta brá svo við, að fulltrúar Dagsbrúnar, Sjómannafélagsins og Verkakvennafélagsins voru ekki boðaðir á fund. Í. járniðnaðarmannafélaginu ætluðu meistararnir að lækka kaupið, og var það í fullu samræmi við kauplækkunina í atvinnubótavinnunni. Og þó að þm. G.-K. neiti því, að stjórn Sjálfstæðisflokksins hafi átt nokkurn þátt í þessu, þá eru það atburðirnir, sem sanna hið gagnstæða.
Við l. gr. höfum við komið með brtt. um það, að heimilt sé að skipa um fjölda lögreglumanna, ef bæjarstj. hefir óskað þess. Það sem við viljum fyrst og fremst leggja áherzlu á, er það, að ríkisstj. fyrirskipi ekki setulið eða mikla lögreglu í bæjum bókstaflega á móti vilja þeirra. Það má ætla, að meiri hl. bæjarstj. í hverjum bæ fari fram á að hafa næga lögreglu til að halda friði og öryggi, og ef meiri hl. bæjarstj. óskar ekki eftir að auka hana, þá sé þess ekki þörf. En hinsvegar getur þessi óþarfa lögregla kostað æðimikið.
Þá komum við með brtt. við 4. gr., þar sem stendur, að lögreglu megi ekki nota til að hafa önnur afskipti af venjulegum vinnudeilum en halda uppi friði og afstýra skemmdum, meiðslum og vandræðum. Við álítum, að í frv. eins og þessu sé það mikill ókostur, að ekki sé algerlega ljóst, við hvað er átt. Lögin eiga að vera þannig, að ekki sé eitthvað falið í þeim, sem löggjafarnir sjá ekki, hvað þá almenningur. Hvað þessar „venjulegu“ vinnudeilur eru, hefir alls ekki verið skýrt, en eftir því sem hæstv. ráðh. hefir tekið fram, þá virðast þeir eiga að geta sætt sig við það, að orðið „venjulegum“ falli burt. Við álítum þetta mikils virði til þess að gefa ekki óhlutvöndum lögreglustjórum undir fótinn. Það er hægt að segja um hverja einustu vinnudeilu, að hún er á einhvern hátt ólík annari.
Þá komum við með viðbótartill. við 4. gr. í samræmi við það, sem hv. þm. G.-K. sagði, þegar hann var ráðh. Hún hljóðar svo: „Aftan við gr. bætist: en menn mega ekki verja vinnu verkfallsbrjóta“. Þar með er ekki sagt, að lögreglan geti ekki varið, að menn séu meiddir eða skemmdir. En þeir mega ekki liðsinna verkfallsbrjótum. Hér eru svo glögg hugtök, að óþarfi er að villast.
Þá komum við með brtt. við 5. gr. viðvíkjandi skipshöfnum varðskipanna og tollvörðum. Viðvíkjandi varðskipum, að í stað þess að þeir teljist til lögreglumanna ríkisins, skuli þeir ekki teljast það. Enda hafa þeir öðrum hnöppum að hneppa en að gegna slíkum kvöðum. Er eigi meiri ástæða að taka þá en fjölmarga aðra starfsmenn ríkisins, nema síður sé, því að löggæzlan á sjónum gæti þá lent í kalda koli.
Þá er mjög óskiljanlegt, hvers vegna sérstaklega heimilt er að láta tolleftirlitsmenn vera lögreglumenn, frekar en aðra menn. Það væri þá engu síður ástæða að tiltaka marga aðra embættis- og sýslunarmenn, sem líkt stendur á um og tollarana. En ef þessi till. okkar verður ekki samþ., þá leggjum við til, að gr. verði færð út, til að ná meira jafnrétti. Aftan við gr. bætist: „Sama og um tollverði gildir um ráðherra, skrifstofustjóra í stjórnarráðinu, landsbókavörð, fornmenjavörð, vegamálastjóra, landssímastjóra, póstmálastjóra og biskup, og skulu þessir embættismenn ávallt ganga fram í fremstu röð, er til atlögu kemur“. (ÓTh: Af hverju er landlæknir ekki með?). Landlæknir verður sjálfsagt í hjúkrunarliðinu. (ÓTh: En bankastjórar?). Við höfum tekið ámóta marga menn eins og eru við tolleftirlitið, ekki aðeins þá, sem eru lægst launaðir, heldur álitið, að þeir hæst launuðu af starfsmönnum ríkisins ættu jafnt að gera skyldu sína og ganga fram og sýna hugrekki. Þetta er mjög svo eftir kenningu aðalheimspekings íhaldsins, Guðmundar Finnbogasonar, sem í bók sinni „Stjórnarbót“ segir, að þegar þeir ráðandi menn þjóðanna vilji leggja í stríð, skuli þeir sjálfir fremstir ganga. Ég hygg, að það fari vel á því að hafa núverandi eða fyrrv. dómsmrh. fremstan í liði. (Rödd af þingbekkjum: Ef það eiga að vera þeir hæst launuðu, þá vantar landlækni og bankastjóra?). Ég geri fastlega ráð fyrir, að hann verði í hjúkrunarliðinu.
Annars er það í sjálfu sér óskiljanlegt, ef á að taka menn, sem hafa ákveðin störf með höndum fyrir ákveðin laun, og setja þá í önnur störf. Hvers vegna á að taka þannig þá lægst launuðu, en sleppa þeim, sem hæst launin hafa?
Þá komum við með brtt. við 6. gr., sem svipar til brtt. við 1. gr., viðvíkjandi aukningu á lögregluliði, að ráðh. ráði ekki þar um, heldur komi í hans stað, „ef bæjarstj. samþykki“. Þá viljum við og bæta við þessa gr. Þar er gert ráð fyrir, að það sé hægt að bæta 50% við það lögreglulið, sem annars má vera fyllst, þannig að ríkisstj. beri hluta af. Við viljum, að þetta sé lagt undir Alþingi, svo að síður sé haldið uppi kostnaðarsömu liði, ef ekki er fyllsta þörf. En ef Alþingi situr ekki, þá falli þessi aukning lögreglunnar niður, ef næsta Alþingi hefir ekki samþ. hana áður en mán. er liðinn af Alþingi. Þess mætti vænta, að þm. vildu halda þessum rétti þinginu til handa.
Viðvíkjandi 7. gr. gerum við ekki brtt.; Við erum mótfallnir henni, og munum greiða henni mótatkv.
Þá kem ég að brtt. við 10. gr., sem mér finnst meirihlutaflokkarnir í þinginu eigi að geta tekið til greina. Það bar við í gær, að samþ. var að afgr. ekki mál, heldur leita þjóðaratkvæða. Það er áfengismálið. Það er óhætt að segja, að þetta ríkislögreglumál er a. m. k. eins mikið deilumál í landinu eins og bannmálið. Við leggjum þess vegna til, að 1. gangi ekki í gildi, nema að fengnu samþykki meiri hl. kjósenda til sveitar- og bæjarstj. með þjóðaratkvgr. sem fari fram um leið og næstu kosningar. Þetta er auðvelt í framkv. og er það minnsta, sem forsvarsmenn þessa máls geta gert, að lofa þjóðinni að segja sitt álit.