31.05.1933
Neðri deild: 88. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í B-deild Alþingistíðinda. (1307)

66. mál, lögreglumenn

Héðinn Valdimarsson [óyfirl.]:

Ég vil gera fyrirspurn til hæstv. dómsmrh. út af því lögregluuppþoti, sem varð hér uppi á áheyrendapöllunum, og eins hvernig stendur á því, að hér er höfð varalögregla inni í blaðamannaherbergi. Ég vil spyrja hann að því, hver hefir óskað eftir þessu. Ekki hefir forseti óskað eftir því. Það er mjög óviðkunnanlegt að sitja hér og vera vaktaður af mönnum, sem vitað er um, að meira en helmingur eru nazistar. Hver veldur þessu? Er það kannske Hermann lögreglustjóri, sem fyrirskipar þetta, eða Erlingur Pálsson. Það er ekki enn orðið svo ófriðsamt hér í þinginu, að það þurfi að vaka yfir okkur eins og smábörnum. Það er ekki ástæða til að halda þessum mönnum upp á sérstakt tímakaup til þess að hlusta á ræður. Ég vænti þess, að hæstv. dómsmrh. geti upplýst þetta, og hvort einhver af þeim, sem ég nefndi, valda þessu. En viðvíkjandi lögregluuppþotinu, sem hér varð í gær, átti ég tal við hæstv. dómsmrh. eftir fund í gær. Ég býst við, að hv. þm. hafi þótt það leiðinlegar aðfarir, sem þar skeðu, en ég skal að vísu játa það, að þarna var nokkur órói og gripið fram í ræður manna, en það er ekki nema það, sem oft hefir áður skeð. (LH: Það eru algerð ósannindi, að algengt sé, að gripið sé fram í). Það eru fleiri hér á þingi heldur en hv. þm. V.-Sk., en hann er bæði heyrnarlaus og vitlaus. Það hefir enginn vald til að hafa varaliðið hér inni á Alþingi annar en forseti þingsins. Hann ræður, hverjir taka til máls. Hann getur tekið af þeim orðið. Hann ræður því, hvort áheyrendasalirnir eru opnaðir eða hvort áheyrendum er vísað út. Hann heldur allri reglu. Lögreglustjóri eða fulltrúi hans hefir ekkert vald til að skakka leikinn nema eftir ósk forseta. Það er því óviðkunnanlegt, að ráðist sé inn á pallana án þess að óskað sé eftir því af forseta.

Ég hefi spurt nokkra af áheyrendunum, sem þarna voru uppi, hvernig þetta hafi byrjað. Þeir sögðu söguna á þann hátt, að þarna uppi hefðu verið nokkrir úr hópi kommúnista og allfjölmennur hópur af þessu svo kallaða hvíta liði, og svo hefðu nokkrir lögregluþjónar staðið á bak við. Svo þegar að því kom, að ryskingarnar urðu, þá hefðu þessir lögregluþjónar snúið sér að Stefáni Péturssyni og ætlað að taka hann, og var hann sleginn af einum lögregluþjóninum og fluttur út meðvitundarlaus. Við þetta höfðu orðið nokkrar ryskingar og höfðu hvítliðar rokið upp úr sætum sínum og ætlað að hjálpa til. Þegar þeir höfðu flutt Stefán Pétursson út söfnuðust kringum hann 8 lögregluþjónar, og þá var hann barinn með kylfu aftan í höfuðið og þannig fluttur inn í Hlaðbúð, og þá var strax símað eftir lækni. Þeir vissu ekki, hvaða lögregluþjónn það hefði verið, sem sló hann, en héldu, að það hefði verið Björn Vigfússon. Annar maður hafði meiðzt þarna líka. Ég vildi henda hæstv. dómsmrh. á þetta, ef hann hefir ekki rannsakað þetta.

Það er algerlega óforsvaranlegt af lögreglunni að berja menn með kylfum í höfuðið, þegar hún hefir þá alveg á valdi sínu. Ég vil vænta þess af hæstv. ríkisstj., að hún sjái um, að við þurfum ekki að eiga þesskonar lögreglu hér til þess að vernda okkur á næstunni.