09.03.1933
Neðri deild: 20. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í D-deild Alþingistíðinda. (1341)

68. mál, innflutningsleyfi fyrir sauðfé

Tryggvi Þórhallsson:

Það gleður mig að sjá, að okkur hv. flm. ber ekki mikið á milli. Mér finnst þó till. ekki heppilega orðuð. Þar stendur: „svo að einstakir menn geti flutt inn sauðfé“. Ég legg áherzlu á, að stj. geri það. Vil ég spyrja hv. þm., hvort hann vill ekki laga orðalagið, því að þeir, sem lesa, fá aðra meiningu út úr till. en kom fram í ræðu hans.

Viðvíkjandi stofnfjárræktinni hallast ég að því, að hún sé bezt komin í höndum stj. og Búnaðarfél. Verður þá auðvitað að fá til aðstoðar menn með sérþekkingu, svo að ekki verði fúskað með þetta eða okrað á því o. s. frv.