11.03.1933
Neðri deild: 22. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (1350)
87. mál, bættar samgöngur við Austfirði
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Ég þarf litlu við það að bæta, sem hv. meðflm. minn hefir þegar tekið fram, en vil þó henda á nokkur atriði til að skýra það, hve gífurleg þörf er á bættum samgöngum við Austfirði. Ég geri ráð fyrir, að till. verði vísað til samgmn., og þætti vænt um að eiga kost á að mega gefa henni nokkrar upplýsingar.
1932 var gert ráð fyrir 24 strandferðum á Austfirði. Þessar ferðir hafa verið felldar niður að nokkru leyti, svo að á tímabilinu frá því í des.byrjun og fram í miðjan febrúar féll þangað engin skipsferð, hvorki með póst eða annað. Þetta er nú um strandferðirnar að segja.
Viðvíkjandi Eimskipafélagsferðunum vil ég benda á nákvæma skýrslu um þetta efni, sem birtist í Mgbl. Sýnir sú skýrsla, að viðkomum hefir farið stórfækkandi. Eina skipið, sem heitið getur, að komi þangað, er Lagarfoss, er gengur norður á Húnaflóa og er oftast svo hlaðinn, að menn geta varla komið stykki með honum.
Ég vil benda á eitt dæmi þess, hvílíkt fjárhagstjón þetta samgönguleysi getur haft í för með sér. Síldveiði 1932 byrjaði um miðjan nóv., en þó tókst ekki að koma út nema 400 tn. fyrr en um miðjan des. Sú síld var send hingað til umskipunar í skip Eimskipafél. og Sameinaða félagsins. Þegar skip fengust til að sækja síldina, fengust þau aðeins með þeim skilyrðum, að þau fengju ákveðið magn, 6000 tn. Markaður þessi var í Danmörku, en var svo þröngur, að hann þoldi ekki svo stóra sendingu í einu. Þær 400 tn., er áður höfðu verið sendar, seldust á 45-48 kr. tn., en stóra sendingin á 30 kr. Ef hægt hefði verið að senda síldina vikulega eða hálfsmánaðarlega, er enginn vafi, að hægt hefði verið að selja 1000-2000 tn., eða jafnvel meira, með hærra verðinu.
Þá er alveg útilokað að koma frá sér kældum fiski, nema útvega sérstakt skip til þess. Mótorbátaútvegurinn annarsstaðar á landinu hefir þó oft haft gott af því að geta sent kassa til útlanda eftir hentugleikum.
Ég hygg því, að menn sjái, að það er ekki að ófyrirsynju, að þessi þáltill. er borin fram. Enda hafa komið fram ákveðnar raddir í þessa átt á öllum þingmálafundum eystra. Þetta er og engu síður áhugamál þeirra, er við verzlun fást, en allra framleiðenda.
Ég ætla, að ekki þurfi að skoða þessa till. svo, að hún heyri undir það að hafa sérstök útgjöld í för með sér. Mér virðist svo ríflega áætlað til strandferða í fjárl., og auk þess telur forstjóri ríkisútgerðarinnar, að þetta þurfi ekki að hafa aukin útgjöld í för með sér. Eimskipafélagsferðirnar eiga hinsvegar að vera samningsatriði milli félagsins og landsstj. um leið og rætt er um styrk til félagsins og áætlanir samdar.