05.04.1933
Neðri deild: 45. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í D-deild Alþingistíðinda. (1360)

87. mál, bættar samgöngur við Austfirði

Forseti (JörB):

Vegna þess, hvernig hv. flm. hafa talað fyrir þáltill., og með skírskotun til ummæla hæstv. dómsmrh., að ekki sé um að ræða aukin gjöld úr ríkissjóði með samþykkt till., þá virðist ekki þörf á, að hún gangi gegnum báðar deildir þingsins. Vil ég því spyrja hv. 1. þm. Eyf., hvort hann vilji ekki taka brtt. sína aftur.