05.04.1933
Neðri deild: 45. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í D-deild Alþingistíðinda. (1365)
87. mál, bættar samgöngur við Austfirði
Þorleifur Jónsson:
Þegar sú kreppuráðstöfun var gerð, að ekki skyldi nema annað af strandferðaskipum ríkissjóðs vera í gangi, urðu Austfirðingar harðar úti heldur en aðrir landsmenn. Sökum þess að þeir hafa svo fáar ferðir frá Eimskipafél. Ísl., hlaut það að valda þeim miklum baga; þegar ferðum ríkisskipanna var fækkað um helming.
En þó að það sé Austfirðingum yfirleitt mjög bagalegt, að strandferðunum var þannig fækkað, þá er það þó tilfinnanlegast fyrir þær hafnir, sem engin milliferðaskip koma á, önnur en strandferðaskipin. Vil ég í því efni benda til Hornafjarðar. Þar ríkir hin mesta óánægja út af því, ef strandferðum ríkisskipanna er fækkað, eins og nú horfir við. Það er ekki einungis með tilliti til fólks- og vöruflutninga, heldur og einnig með tilliti til póstsamgangnanna. Þegar ákveðið var að hafa tvö strandferðaskip, var gert ráð fyrir, að þau hefðu á hendi aðalpóstflutningana, og voru því póstferðir á landi víða lagðar niður milli héraða. Var sú tilhögun höfð, að póstar skyldu aðeins ganga frá höfnunum og upp í sveitirnar. Þegar svo strandferðunum var fækkað aftur, urðu þess vegna póstferðir til sumra landshluta ákaflega strjálar. Ég skal geta þess, að ef senda þarf bréf frá Hornafirði hingað suður til Rvíkur, þá tekur það heilan mánuð. Þurfi maður að skrifa austur í Hornafjörð og fá svar til baka, tekur það þannig tvo mánuði. Þá skal þess og getið, að nú er ekkert póstsamband milli A.-Skaftafellssýslu og Múlasýslu landveginn. Það sjá allir, hvað bagalegt þetta getur verið, þegar strandferðum fækkar eins og nú.
Þá er það svo með stað eins og Hornafjörð, sem ekki hefir aðrar strandferðir heldur en ferðir ríkisskipanna, að mjög erfitt er þar um alla flutninga. Sérstaklega er það bagalegt, þar sem svo hagar til, að mjög hefir aukizt ræktun garðávaxta á seinni árum, sem vegna samgönguörðugleika er ekki hægt að koma frá sér á hentugum tíma. Þess vegna getur svo farið, að þó það sé talið nauðsynlegt að fækka strandferðunum og spara með því fé ríkissjóðs, þá getur sá sparnaður komið svo hart niður á landsbúum sjálfum, að hann orsaki hjá þeim jafnvel meiri kreppu heldur en annars þarf að vera.
Á þessum vetri hefir ekki verið hægt að bæta verulega úr þessum samgönguvandræðum Austfjarða, og ætla ég ekki sérstaklega að fárast um það. Ferð hefir ekki fallið til Austfjarða frá 20. febr. þar til nú 10. eða 12. apríl. Þannig hafa liðið um 50 dagar milli ferða, eða langaföstutíminn. Allir hljóta að sjá, hvað slíkt getur valdið miklum trafala í öllu atvinnulífi og haft áhrif á afkomu manna á þessum slóðum. Ég vil því taka undir það, að þó kostnaðurinn við strandferðirnar færi eitthvað fram úr áætlun fjárl. fyrir árið 1933 hjá hæstv. ríkisstj., þá skil ég ekki í, að hún yrði átalin fyrir það. Það er á svo mörgum liðum, sem hæstv. stj. verður oft að fara fram úr áætlun fjárl., og upphæðin, sem ætluð er til strandferða, getur ekki talizt annað en áætlun, sem stj. að vísu á að fara eftir, að svo miklu leyti sem fært er, en getur þó vikið frá, þegar nauðsyn krefur.
Ég legg mikla áherzlu á það, að Súðin verði látin halda uppi ferðum í okt. og nóv. Hún er hentugasta skipið, sem við höfum til strandferða einmitt á þeim tíma, sem mest er flutt af landbúnaðarafurðum milli hafna, þar sem hún hefir stórt lestarpláss og hefir auk þess kælirúm.
Þá er hitt einnig mikilsvert, að hraðferðir þær, sem talað er um í till. milli Austfjarða og Rvíkur, komist á nú í sumar. Ég þurfti ekki að kveðja mér hljóðs hér fyrir það, að nokkur andstaða hafi komið fram gegn þessari till. Það er gott fyrir okkur Austfirðingana að heyra það, að hún hefir fremur fengið meðmæli þeirra, sem á hana hafa minnzt. En ég vildi vekja athygli á því, hvað mjög sumir staðir á landinu eru afskiptir í samgöngum, þeir staðir, sem mesta þörfina hafa á samgöngum eins og þeim, sem haldið var uppi meðan bæði ríkisskipin gengu. Þá höfðu menn fengið að miklu leyti fullnægt þeim samgönguþörfum, sem menn höfðu lengi óskað eftir, að hægt væri að uppfylla.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál. Óska ég, að till. á þskj. 261 fái samþykki hv. d. Jafnframt vænti ég þess, að ef hæstv. stj. þyrfti að nota eitthvað meira til strandferða heldur en gert er ráð fyrir í fjárl. þessa árs, til þess að geta orðið við þeim kröfum, sem í till. felast, þá treysti hún sér til að gera það, eftir þau ummæli, sem hér hafa komið fram frá ýmsum hv. þm. um það, að slíkt mundi verða látið óátalið.