27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2882 í B-deild Alþingistíðinda. (137)

Afgreiðsla þingmála

Ingólfur Bjarnarson:

Út af rekstri hv. 1. þm. S.-M. á eftir afgreiðslu fjvn. á frv. til 1. um greiðslu víxilskulda á Austfjörðum vegna Síldareinkasölu Íslands, vil ég upplýsa það, að fjvn. hefir haft þetta mál til meðferðar á fleiri fundum, og þar sem málið er erfitt viðfangs, hefir n. skipað sérstaka undirn. til að athuga það, sem nú mun hafa lokið störfum, og geri ég því ráð fyrir, að n. muni leggja fram till. í málinu einhvern næstu daga.