05.04.1933
Neðri deild: 45. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (1371)

145. mál, enska lánið

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Ég sé ekkert því til fyrirstöðu, að hv. d. geri slíka ályktun og minni stj. á að nota fyrsta möguleikann til þess að losna við lánið frá 1921.

Ég get gefið þá skýrslu, að á síðastl. ári var gerð tilraun til þess að fá slík lán, bæði í London og í Stokkhólmi. En í London strandaði á því banni, sem þá var lagt á converteringu erlendra lána; þá mátti ekki bjóða erlend ríkisskuldabréf né veita leyfi fyrir erlendum lánum. Enska stjórnin hefir ekki talið sér mögulegt að gefa slíka undanþágu. En Englandsbanki hefir heitið því að gera íslenzku stjórninni strax viðvart, þegar þetta bann verður upphafið og möguleikarnir skapast.

Líka sögu er að segja frá Svíþjóð í þessu efni. Því að þótt þar væru möguleikar til að fá nýtt lán til að greiða þetta gamla lán með, þá strandar á banni sænska ríkisbankans gegn því að lána á ný peninga út úr landinu. Það er vegna verzlunarjafnaðarins, sem hann setur þetta bann. En ríkisbankinn sænski mun einnig tilkynna íslenzku stj., þegar þessu banni verðar af létt, eða ef það verður mildað á einhvern hátt. Möguleikarnir verða því líklega sæmilegir, þegar þessum bönnum gegn nýjum lánveitingum verður létt af.