22.03.1933
Neðri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (1383)

69. mál, sæsímasambandið

Tryggvi Þórhallsson:

Ég er samþykkur þessari till., sem hér liggur fyrir, en ég hefi ekki heyrt nefnda þá upphæð, sem gert er ráð fyrir, að það kosti að koma á talsambandi milli Íslands og útlanda. (Dómsmrh.: Allt að hálfri millj. kr.). Nú skilst mér, að þessi till. sé ekki nema til einnar umr., og felur hún þá ekki í sér heimild til fjárútláta. Þar af leiðandi býst ég við, að verði að líta svo á, að því aðeins geti þetta komið til framkvæmda, að fjárveiting liggi fyrir frá Alþingi.