22.03.1933
Neðri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (1384)

69. mál, sæsímasambandið

Forseti (JörB):

Viðvíkjandi því formi, sem hv. þm. Str. vék að í sinni ræðu, þá hefi ég hugsað mér, ef brtt. hv. samgmn. nær samþykki í deildinni, að þessi umr. verði skoðuð sem fyrri umr. og síðar fari fram síðari umr. Það er að vísu búið að samþ. eina umr., en ef þessi breyting verður samþ., þá felur hún það í sér, að önnur umr. verði að fara fram.