03.03.1933
Neðri deild: 15. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2884 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Héðinn Valdimarsson:
Ég veit, að öllum hv. þdm. er að nokkru kunnugt aðalinnihald norsku samninganna, vegna þess að það var birt í Alþýðublaðinu í gær. En þrátt fyrir það hvílir sú skylda á stj. að birta alla orðahljóðan samninganna. Það er einkennilegt, hve mjög þetta hefir dregizt, og sé ég ekki, að þær ástæður, sem fyrir því eru færðar, séu á nokkurn hátt gildar. Því var lofað, að samningarnir skyldu birtir í þingbyrjun, og nú er þó nokkuð liðið af þingtímanum, og nú fyrst, þegar öllum er innihald þeirra kunnugt, ætlar stj. að birta þá.