11.05.1933
Neðri deild: 71. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í D-deild Alþingistíðinda. (1420)
190. mál, byggðarleyfi
Héðinn Valdimarsson:
Ég er mótfallinn þessari þáltill. Frv. um byggðarleyfi hefir hvað eftir annað komið fram á Alþingi áður og ekki náð fram að ganga. Sú stefna hefir oft látið á sér bæra, að skorður væru reistar við flutningi fólks til kauptúna og kaupstaða, eftir því hvort þeir menn, sem þangað vildu flytja, ættu eignir eða ekki. Þessar skorður hafa verið hugsaðar þannig, að auðvelt yrði að varna fátæku verkafólki að flytjast búferlum, sem hefir ekki annað en handafl sitt að styðjast við. En þeim, sem hafa eigna- eða peningaráð, væri vitanlega heimilt að fara hvert á land sem þeir vildu. Ég álít, að það sé engin ástæða til að setja þetta átthagaband á fólkið, sem hér er verið að óska eftir með þáltill. Það vita allir, að fólkið flytur til kaupstaðanna í þeirri von, að því muni líða þar betur. Og það er engin lausn á þessum vandræðum, sem af fólksflutningunum og atvinnuleysinu stafa, að banna fólkinu að flytja þangað, sem því líður betur. Eina úrræðið væri það, að búa svo um, að fólkinu líði betur í sveitunum, svo það þurfi ekki að flýja til verstöðvanna við sjóinn.
Það er öllum vitanlegt, að verkafólkinu, sem búsett er í verstöðvunum, kemur ekki vel, að þangað streymi fólk úr sveitunum í atvinnuleit eða til aðseturs. En þær tillögur, sem fram hafa komið á undanförnum þingum til að sporna við því, hafa ekki fallið verkafólkinu vel í geð, þótt verkamannafélögin hafi stundum. reynt að koma í veg fyrir það sjálf, með auglýstum aðvörunum gegn því, að verkafólk flytjist úr einum stað í annan og þrengi að þeim, sem fyrir eru. Þessi þáltill. er auk þess algerlega óþörf. Hv. þm. Borgf. hefði vafalaust sjálfur getað undirbúið og flutt frv. um þetta efni, sem hann lætur sér svo annt um; það er ekki svo vandasamt.