11.05.1933
Neðri deild: 71. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (1421)
190. mál, byggðarleyfi
Bernharð Stefánsson:
Ég vildi aðeins segja fáein orð út af því, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði um sögu þessa máls á undanförnum þingum. Mér virtist hann vilja skýra tilgang þess frumv., sem áður hefir verið flutt á Alþingi um byggðarleyfi, á þá leið, að hann hefði verið sá, að þrengja kosti þeirra, sem erfiðast eiga í þjóðfélaginu. Af því að ég var flm. að frv. um byggðarleyfi fyrir nokkrum árum, vil ég minna á það, sem fyrir mér vakti með því frv. Tilgangurinn var fyrst og fremst sá, að koma einhverjum vörnum við fyrir einstök sveitarfélög gegn aðstreymi fólks, sem teljast mætti óeðlilega mikið. Það má náttúrlega segja ýmislegt með því og móti. Hv. 2. þm. Reykv. taldi, að það væri sjálfsagt að lofa fólkinu að vera þar, sem því liði bezt, og það er að vissu leyti rétt. En á það verður að líta, að eins og fátækralöggjöfin var þá, er ég flutti þetta frv., og er raunar enn, þá kemur það sannarlega fleirum við en innflytjendunum, hverjir koma inn í sveitarfélagið. Íbúar sveitarfélagsins, sem fyrir eru, verða að ganga í einskonar ábyrgð fyrir afkomu þess fólks, sem inn í sveitina flytur. En þó ber þess að gæta, að á síðasta þingi voru sett lög, sem jafna að nokkru leyti fátækrabyrðinni á milli sveitarfélaganna. Hættan fyrir sveitarfélög af innflutningi fólks er því ekki svipað því eins mikil nú og fyrir 9 árum síðan, þegar ég hreyfði þessu máli fyrst á Alþingi.
Ég sé ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta mál nú. En ef hv. 2. þm. Reykv. heldur, að þetta frv. hafi verið flutt á undanförnum þingum með það fyrir augum að halda fólkinu í vistarbandi, þá er það alger misskilningur. Það var einungis flutt sem varnarráðstöfun fyrir sveitarfélögin, sem gátu ekki risið undir þeim útgjaldaþunga, sem leiddi af flutningi þess fólks inn í sveitina, er ekki gat séð sér farborða af eigin rammleik og varð því að þiggja fátækrastyrk fyrr en varði.