11.05.1933
Neðri deild: 71. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (1426)

190. mál, byggðarleyfi

Flm. (Pétur Ottesen) [óyfirl.]:

Ég vil benda hv. 2. þm. Reykv. á það, að það kemur í sama stað niður, hvort samþykktir um þetta eru gerðar af sveitar- eða bæjarstjórnum eða atvinnurekendum annarsvegar, eða þá af verkalýðsfélögunum hinsvegar. Það má einu gilda fyrir sjómenn af Akranesi, á hvern hátt þeir eru útilokaðir af togaraflotanum hér í Reykjavík. Þess vegna er, eins og ég benti á áðan, í þessari till. ekki farið fram á annað en það, sem bæjarstjórn Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Vestmannaeyja o. fl. staða hafa séð sig nauðbeygðar til að koma í framkvæmd, til þess að sporna við auknu atvinnuleysi innan sinna vébanda. Þetta ber allt að sama brunni.

Hv. þm. spurði, hví ég vildi fela stj. að koma þessu máli á; ég gæti eins gert það sjálfur. Ég þykist vera sjálfráður að því, hvaða leið ég vel til þess að koma því á. Óskir um þetta komu svo seint fram, að mér hefir ekki unnizt tími til að ganga frá málinu, og því legg ég til, að stj. verði falið að undirbúa það fyrir næsta þing. Má búast við því, að málið fái með þeim hætti betri undirbúning, enda ekki víst, hve lengi þing kann að standa úr þessu.

Hv. 2. þm. Rang. virðist vera nokkuð viðkvæmur í þessu máli. Ég veit ekki, af hverju. Ég hefi, satt að segja, ekki orðið var við þessa viðkvæmni hjá honum áður, og hefir mér ekki virzt þynnri á honum skápurinn en öðrum. Held ég, að þetta muni vera sprottið af augnabliksæsingi, sem gripið hefir hv. þm. og engan veginn er í samræmi við alvöru málsins og nauðsynina á því að taka það til rólegrar íhugunar, því að málið er talsvert íhugunarvert. Hv. þm. sagði, að þetta fyrirkomulag myndi auka á óvildina milli sveita og bæja. Ég get ekki fallizt á það. Er engum manni fengur í því, að verið sé að hleypa fleirum til atvinnuleitar á einhverjum stað en þar geta fengið atvinnu. Er hér verið að fyrirbyggja það, að menn fari til atvinnuleitar í önnur héruð og komi síðan heim vonsviknir með tvær hendur tómar. Hv. þm. hélt því fram, að þetta myndi leiða til þess, að sveitirnar lokuðu fyrir atvinnu þá, sem þær hafa áður veitt kaupstaðabúum. Ég veit nú ekki betur en að sveitirnar hafi orðið að sækja á um það að fá vinnukraft úr kaupstöðunum. Hinsvegar leitar fleira fólk til kaupstaðanna en þörf er á þar. Sé ég heldur ekki, að þetta geti á nokkurn hátt komið í bága við, að fólk fari úr kaupstöðum upp í sveit sér til hressingar. — Mun ég svo ekki ræða þetta frekar.