11.05.1933
Neðri deild: 71. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (1428)

190. mál, byggðarleyfi

Sveinbjörn Högnason:

Ég leiði alveg hjá mér bollaleggingar hv. þm. Borgf. um það, hvaða hvatir liggi á bak við hjá mér, er ég andmæli þessari till. hans. Það getur vel verið, að hans skrápur og jafnvel taugar hans séu fínni en hjá mér. Það er rétt, að sveitirnar hafa oft orðið að sækja á um að fá vinnukraft úr kaupstöðunum, en þó hefir það ekki verið svo um sumartímann. Annað atriði, sem hér kemur til greina, er það, að kaupstaðirnir hafa sótt hart á um það, að fá dvöl í sveitunum fyrir ungviði sitt. Væri það ekki alveg sama fyrir ungu kynslóðina í bæjunum, ef alveg yrði lokað fyrir þetta.

Við bollaleggingar hv. 1. þm. Eyf., sem virtist vera að reyna að hughreysta mig með því, að þetta myndi ekki eiga að ná til presta, get ég bætt því, að við megum víst báðir vera rólegir; er víst ekki hætta á, að það nái heldur til bankastjóra. En það eru nú til fleiri stéttir í landinu.

Fátækraframfærslan kemur þessu ekkert við. Ég er hv. þm. sammála um það, að þörf er á að athuga betur löggjöfina um fátækraframfærslu, en leiðin til umbóta á því sviði er ekki sú, að binda menn svo á klafann, að þeir geti ekki leitað annað um atvinnu en þangað, sem þeir eru fæddir og uppaldir. Verður það sízt til að létta af fátækraþyngslunum, ef loka á fyrir það, að fátæklingar í sveitum geti leitað sér atvinnu við sjó. Myndi þá gerast þröngt í búi hjá mörgum hreppnum.