03.03.1933
Neðri deild: 15. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2886 í B-deild Alþingistíðinda. (143)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jóhann Jósefsson:

Ég vil þakka hæstv. forsrh. upplýsingarnar, sem á þessu stigi málsins eru mér fullnægjandi. — Hvað birtingu samninganna snertir, þá er ekki ástæða til að ræða um réttmæti eða óréttmæti þess nú. A. m. k. tel ég slíkar umr. þýðingarlausar. En ég vil láta þá skoðun í ljós, að eftir því sem sagt er um innihald samninganna, þá er það svo mikilvægt fyrir vissa grein íslenzks atvinnurekstrar, þ. e. síldarútgerðina, að ekki sé heppilegt, að dragist lengi, að full vissa fáist um, hvort sú braut verður gengin, sem með samningnum er farið inn á. Álít ég, að dráttur á birting samninganna geti haft margvísleg óþægindi í för með sér.