19.04.1933
Efri deild: 51. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í D-deild Alþingistíðinda. (1441)

122. mál, kaup eða leigu á síldarbræðslustöð

Frsm. (Jakob Möller) [óyfirl.]:

Eins og hv. dm. sjá af nál., hefir n. í raun og veru fallizt alveg á till., þó að hún vilji að vísu gera nokkrar breyt. á orðalagi. N. er þeirrar skoðunar, eins og nú er komið með síldveiðina, að það sé mikil nauðsyn á því, að sem allra flestar bræðslustöðvar séu í rekstri á hverju síldveiðitímabili, því að sannleikurinn er sá, að ef nokkur gangur er í síldveiðinni, þá er sennilegt, að þörf sé fyrir að bræða jafnvel töluverðan meiri hl. af þeirri síld, sem veiðist. Markaðurinn fyrir annarskonar síld, saltaða eða sérverkaða, er svo tiltölulega lítill, samanborið við það, sem veiðist, að það er ómögulegt, að útgerðin geti borið sig, ef ekki er hægt að koma í eitthvert verð a. m. k. þeim afla, sem ekki er hægt að salta. E. t. v. kynni nú að rætast eitthvað úr þessu í framtíðinni, ef markaðsmöguleikarnir vaxa, sérstaklega í Þýzkalandi og Póllandi, en enn sem komið er er það ekki svo mikið, að það geri neina verulega breyt. frá því, sem verið hefir. — Nú er svo ástatt, að undanfarin ár hafa ekki verið reknar sumar þær bræðslustöðvar, sem til eru, eins og t. d. sú stöð, sem nefnd er í till. og kennd er við dr. Paul, og önnur stöð líka. Þá hefir líka verið nokkur vafi á um rekstur stöðvarinnar á Sólbakka, sem að vísu hefir verið rekin hingað til. Var hún í fyrra leigð einkafyrirtæki til rekstrar, en ég veit ekki til þess, að fullkomin vissa sé fyrir því, að sú stöð verði í rekstri á næsta sumri. Eins er um bræðslustöð Goos á Siglufirði, sem sumpart var rekin á síðastl. sumri. Maður veit ekki, hvort svo verður á komandi sumri. Það er auðsætt, að það er nauðsynlegt, að haft sé auga með því, hverjar af þessum stöðvum verði í rekstri af hálfu eigendanna og hverjar ekki. Ef svo kynni að fara, að góð stöð yrði ekki rekin af eigandanum, telur n., að ekki sé í það horfandi fyrir ríkisstj., a. m. k. að þessu sinni, að gera ráðstafanir til þess, að stöðin verði rekin, og þá fyrir ríkisins reikning. Það er augljóst mál, að til þess að reka þannig stöð fyrir ríkisins reikning, þá hentar bezt stöð dr. Pauls á Siglufirði. En það er hugsanlegt, að eigandinn reki hana sjálfur, ég hefi jafnvel heyrt, að það gæti komið til mála, og þá er ekki meining n., að það sé hindrað, að leitað sé svo fast á að fá stöðina leigða, að hún sé tekin til rekstrar, þrátt fyrir það, að eigandinn hafi ætlað að reka hana sjálfur. N. lítur svo á, að það sé ekki kappsmál, að stöðvarnar séu reknar fyrir ríkisins reikning, heldur að þær verði í rekstri. Bæði af þessum ástæðum og svo hinu, að ef til mála gæti komið með aðrar stöðvar, að ríkið tæki þær á leigu til rekstrar, ef þær yrðu ekki reknar af eigendunum sjálfum, leggur n. til, að till. sé breytt þannig, að hún tilgreini ekki neina ákveðna stöð, sem ríkisstj. verði heimilað að taka á leigu. Þá telur n. sjálfsagt, að gengið sé tryggilega frá því, að sú stöð, sem þannig yrði tekin á leigu af stj., verði í fullkomnu standi, að ekki þurfi að leggja í allt of mikinn kostnað við að bæta úr hugsanlegum ágöllum, þannig að kostnaðurinn yrði óhæfilega mikill í samanburði við það gagn, sem stöðin annars kynni að gera; ennfremur að leiguskilmálar og annað viðvíkjandi samningunum milli eiganda og ríkisstj. sé þannig úr garði gert, að áhættan verði ekki óhæfilega mikil, t. d. í sambandi við þær skemmdir eða slys, sem kynnu að verða í sambandi við tæki stöðvarinnar. Hygg ég, að með orðalagi tillgr., eins og n. leggur til að hún verði, sé tryggt, að ríkisstj. telji sér ekki skylt að fara út í allt of áhættusaman rekstur. Þrátt fyrir það telur n. það mjög nauðsynlegt, að sem flestar stöðvar verði reknar á komandi sumri. Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, en vænti, að till. verði samþ.