08.05.1933
Efri deild: 66. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í D-deild Alþingistíðinda. (1452)

122. mál, kaup eða leigu á síldarbræðslustöð

Jón Baldvinsson:

Það má vel vera rétt hjá hv. frsm., að það þyrfti einnig að breyta orðalagi sjálfrar till. til þess að fá heimildina víðtækari, og það tel ég, að þurfi að gera, því að mér finnst eðlilegt, að þegar ríkið er búið að byggja bræðslustöð á Siglufirði fyrir a. m. k. 11/2 millj., sem er fullkomnasta síldarbræðslustöð á landinu, þá taki stj. einnig á leigu eða kaupi stöð dr. Pauls; með því yrði bætt úr fyrir hin smærri síldveiðiskip. En eins og kunnugt er, fara

aðeins örfáir togarar á síldveiðar, og væri því ástæða til þess, að ríkisstj. taki á leigu fleiri síldarbræðslustöðvar; má þar benda á stöðina á Sólbakka. Væri hún mjög hentug fyrir togarana, sem oft veiða mikla síld fyrir Vestfjörðum og kringum Horn. Er mikil þröng um síldveiðitímann á Siglufirði og erfitt að komast þar að. En það er lífsspursmál fyrir landsmenn, að fiskiskipaflotinn geti sem mest stundað síldveiðar yfir sumarið, því að sú veiði hefir oft bjargað útveginum, eins og t. d. síðastl. sumar. Mér finnst því rétt, að í till. felist heimild fyrir ríkisstj. að taka fleiri síldarbræðslustöðvar á leigu, ef ekki semst t. d. um leigu á stöð dr. Pauls. Um þetta vildi ég koma með brtt., en það verður ekki gert á stuttri stund. Vil ég því mælast til þess við hæstv. forseta, hvort hann sjái sér ekki fært að draga mál þetta í 1-2 daga ennþá, svo að mér vinnist tími til að koma fram með brtt. um þetta.

Þá vil ég geta þess, að ég saknaði úr ræðu hv. frsm. upplýsinga um það, hvort hann hefði f. h. sjútvn. átt tal við stj. um það, hvort hún myndi fús að nota þessa heimild, ef till. verður samþ., því að mér heyrðist sá ráðh., sem talaði við fyrri umr. þessa máls, hafa allt á hornum sér út af leigu á stöð dr. Pauls, því að hún væri svo gölluð. Það þýðir ekki að samþ. slíka till. sem þessa, ef ekki verður farið eftir henni.