03.03.1933
Neðri deild: 15. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2891 í B-deild Alþingistíðinda. (148)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Tryggvi Þórhallsson:

Ég vil taka undir það, sem hæstv. forseti sagði, að þegar á að hefja slíkar umr., sem hér hafa nú fram farið, um slíkt stórmál, sem þetta er, þá eiga umræðurnar að fara fram innan ramma þingskapanna. En úr því að þessum umr. var komið á stað, þá verð ég að láta það í ljós, að það er mjög leitt, sem hér hefir komið fyrir, að rofið hefir verið þagnarheit um samningana. Það hefir nú þegar komið fram í umr., hvernig stofnað var til samninganna og hver úrslitin urðu. Það var gert til þess að greiða úr vandræðum landbúnaðarins, er stöfuðu af því, að norska stj. hafði sagt upp kjöttollssamningunum, til stórfelldrar hækkunar á tollinum. Var tveimur mönnum falið, fyrir hönd tveggja aðalatvinnuvega þjóðarinnar, að gera samningana. Og ég veit, að það muni vera samhuga álit mikils meiri hl. þjóðarinnar, að þeim Jóni Árnasyni og Ólafi Thors hafi tekizt við samningagerðina eftir því sem unnt var. Niðurstaðan af samningunum verður vafalaust sú, að bændur mega horfa með meiri bjartsýni fram á veginn.

Þegar það er einnig fullvíst, að við höfum notið styrks frá mönnum í Noregi, sem eru Íslendingum velviljaðir, þá þykir mér illa farið, að það skuli hafa verið rofið þagnarheit, sem samningsaðilar höfðu komið sér saman um viðvíkjandi samningunum. Ég vildi óska, að þetta kæmi ekki fyrir aftur, því að það getur skaðað okkur stórkostlega út á við.