03.03.1933
Neðri deild: 15. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2893 í B-deild Alþingistíðinda. (150)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég vil aðeins minna á, að það er ekkert nýstárlegt, þó að samningum, sem gerðir eru á milli þjóða, sé haldið leyndum um stundarsakir. Og get ég í því sambandi nefnt Ottawasamningana, sem gerðir voru í fyrra, þó að þeir séu ekkert einsdæmi að því er það snertir. Náttúrlega er enginn bundinn þagnarskyldu samkv. lagaboði, en það er ætlazt til þess, að menn í utanríkismálanefnd gæti drengskaparskyldu.
Ég ætla ekki að gera efni samninganna að umtalsefni að þessu sinni, en það er vitanlegt, þegar um er að ræða samninga á milli tveggja aðila, þá getur hvorugur fengið allt það, sem hann vill eða óskar eftir, og þess vegna verður hvorugur aðilinn harðánægður. En ég get lýst yfir því áliti mínu, að þeir menn, sem að samningunum unnu fyrir okkar hönd, hafi haldið þar vel á hinum íslenzka málstað. Þess vegna er mér skylt að flytja þeim fyrir hönd stjórnarinnar hinar beztu þakkir fyrir ágætt starf.